Á vængjum ástarinnar Þórarinn Þórarinsson skrifar 8. febrúar 2018 22:00 Lói er varla skriðinn úr egginu þegar áföllin dynja yfir en margur er knár þótt hann sé smár.
Lói litli er lóuungi sem er ekki orðinn fleygur þegar hann fær að kynnast því að lífið getur verið miskunnarlaust. Áfallastreituröskun verður síðan til þess að hann getur ekki flogið. Afleitt fyrir farfugl og fótgangandi þarf hann, einn og yfirgefinn, að berjast fyrir lífi sínu þegar veturinn skellur á af fullum þunga. Myndin er í grunninn sígild þroskasaga hetjunnar ungu sem þarf að ganga í gegnum eldraunir áður en hún finnur neistann sem kippir henni í gír og sýnir allt sem í henni býr, eins og sálarskáldin orðuðu það. Lói staldrar við allar helstu vörðurnar á ferðalagi hetjunnar. Gamli og gáfaði leiðbeinandinn er á sínum stað, fulltrúi hins illa er á sínum stað og ástin auðvitað líka. Sagan er bráðskemmtileg og líkleg til þess að heilla krakkana sem myndin er fyrst og fremst gerð fyrir. Og góðu heilli er hún nógu þroskuð til þess að þeim fullorðnu leiðist ekki. Þar munar mest um spriklandi skemmtilegar aukapersónurnar, bölsýnu rjúpuna Karra og morðóðan og sísvangan fálkann Skugga. Annars er persónugalleríið heilt yfir ansi gott, fullt af alls konar kunnuglegum dýrum í nett víruðum útlitspælingum.Tölvuteikningin á myndinni er býsna tilkomumikil og myndin bæði litskrúðug og áferðarfögur. Gengið var frá sölu á myndinni til slíks fjölda landa, áður en hún var frumsýnd á Íslandi, að fáheyrt verður að teljast þegar íslensk teiknimynd er annars vegar. Kemur samt ekki á óvart þar sem myndin er haganlega saman sett, einhvern veginn alíslensk í grunninn en með alþjóðlegu yfirbragði þannig að söguheimurinn getur verið hvar sem er. Það er svo ekki síst ánægjulegt að höfundarnir fara sparlega með Disney-glassúrinn þannig að háski og sorgir Lóa verða raunverulegri en gengur og gerist í teiknimyndum. Tíu ára aðstoðarrýnirinn minn og fulltrúi markhópsins hún Ragnheiður Björt gefur Lóa bestu hugsanlegu meðmæli og þar sem börnin eru bestu gagnrýnendurnir í þessum efnum gef ég henni bara orðið: „Pabbi, gefðu henni fimm stjörnur.“Niðurstaða: Feykilega vel heppnuð teiknimynd. Áferðarfögur, fyndin, spennandi og falleg. Fullt hús stjarna að skipun einnar tíu ára.
Bíó og sjónvarp Menning Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Laufey á lista Obama Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Lífið Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Lífið Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Lífið Vangreiðslugjald orð ársins 2025 Menning Fleiri fréttir Úr öskunni í eldinn Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira