Vignir Rafn hundskammar menningarritstjóra RÚV Jakob Bjarnar skrifar 21. mars 2018 10:32 Vignir Rafn hellir sér yfir Bergstein sem vill ómögulega eiga reiði leikhússbransans yfir höfði sér.
Vignir Rafn Valþórsson, leikari og leikstjóri, er afar ósáttur við þá gagnrýni sem boðið var upp á í „Menningunni“ á Ríkissjónvarpinu. En, þar var snubbóttur dómur um Hans Blæ, nýtt íslenskt leikrit eftir Eirík Örn Nordahl sem er sett upp í Tjarnarbíói af leikhópnum Óskabörnum ógæfunnar í leikstjórn Vignis Rafns.Norðurlandamet í að ryðja út úr sér greiningu Vignir Rafn ritar harðorðan pistil og birtir í hópi sem reyndar Eiríkur Örn stofnaði á sínum tíma á Facebook og heitir Menningarátökin.Vignir Rafn er verulega ósáttur við snubbótta umfjöllun Menningarinnar á RÚV, um nýja sýningu sína.Vísir/VilhelmHann birtir hlekk á umfjöllunina og setur spurningarmerki við það hvernig að umfjölluninni er staðið: „Hér sitja þrjár manneskjur og á ca þrem mínútum reyna þær að setja norðurlandamet í að ryðja út úr sér einhverri „greiningu“ eða skoðun á listaverki sem tók þrjú ár að fjármagna og búa til. Með þessu hefur RÚV tikkað í boxið og getur slegið um sig og sagst „fjalla um menningu í landinu“,“ segir Vignir Rafn afar ósáttur.Til lítils að splæsa frímiðum á gagnrýnendur... Hann bætir því við að auðvitað geti þau í leikhópnum tekið eina og eina setningu sem „sem sérfræðingarnir láta út úr sér og slegið upp sem heilögum sannleik á plakatinu til að selja miða. Annað er ekki að taka úr þessu fyrir okkur (eða áhorfendur).Bergsteinn vill síður eiga reiði leikhússfólksins yfir höfði sér.Vísir/ValliÉg meina, EINA ástæðan að leikhús landsins taka þátt í því að splæsa frímiðum á gagnrýnendur er:Vonin að þeir segi eitthvað næs sem við getum selt sjittið okkar með,“ skrifar Vignir gramur og segir að þannig sé það bara. Leikstjórinn segist ekki vilja setja of mikinn fókus á kostnaðinn við að bjóða gagnrýnendum „en miðinn á Hans Blævi kostar 3.900 sem sinnum sex (tveir miðar á hvern gangrýnenda) er 23.400.“ Vignir Rafn telur þetta langt í frá viðunandi.Bljúgur Bergsteinn en herskár Helgi Bergsteinn Sigurðsson, menningarritstjóri Ríkissjónvarpsins, er heldur lúpulegur þegar hann svarar hinum herskáa leikstjóra á þessum sama vettvangi. „Ég get tekið undir að þetta var of stutt í gær. Aðstæður leyfðu illu heilli ekki lengingu á þættinum í gær. Það hefði auðveldlega verið hægt að ræða Hans Blæ allan tímann og gott betur,“ segir Bergsteinn. Með kveðju.Helgi Seljan hefur minni en engan áhuga á að láta gusur úr ranni leikhúsfólks yfir sig og stofnun sína ganga.Félagi hans á Ríkisútvarpinu, Helgi Seljan, er hins vegar ekki eins bljúgur þegar hann leggur orð í belg vegna þessa erindis. Og rís upp stofnuninni og félögum sínum þar til varnar. Slær í brýnu milli Helga og Vignis Rafns.Viggi come on! Svo hér sé birt örleikrit, samtal milli fjölmiðlamannsins og leikstjórans, sem finna má á Menningarátökunum: Helgi Seljan: „Dómarinn er ósanngjarn. Fékk samt frítt inn á leikinn. Og þess vegna vil ég ekki sjá’ann. Viggi come on!“ Vignir Rafn Valþórsson: „Er þetta í alvörunni punkturinn sem þú lest úr pistlinum Helgi?“ Helgi Seljan: „More or less, já.“
Mest lesið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Merzedes Club snýr aftur Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Þungarokkarar komast ekki til Íslands Lífið Guðlaugur og Anný Rós keyptu einbýli í Garðabæ Lífið Gunnar selur þakíbúð í „New York Loft-stíl“ Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira