Bankamaður gerist vínbóndi Starri Freyr Jónsson skrifar 27. apríl 2018 07:29 „Ég hef aldrei séð eftir þessari ákvörðun minni, þetta ferli er allt búið að vera alveg meiriháttar skemmtilegt,“ segir Höskuldur Hauksson vínbóndi. Vísir/Stefán
Eftir að hafa starfað í fjármálageiranum, að mestu leyti erlendis, í nær tvo áratugi ákvað Höskuldur Hauksson að gerast bóndi og víngerðarmaður í fullu starfi. Hann hefur komið sér vel fyrir, ásamt fjölskyldu sinni, í Hünenberg See í Sviss þar sem hann ræktar þrúgur og framleiðir hvítvín og rauðvín undir vörumerkinu Hauksson Weine. Hann segir þann draum lengi hafa blundað í sér að fara út í vínrækt. „Ég hef framleitt vín í frítíma mínum síðan 2013 og hugsaði alltaf um vínræktina sem eitthvað sem ég myndi dunda mér við þegar ég færi á eftirlaun. En einhvern veginn gerðust hlutirnir mun hraðar. Mér bauðst að taka yfir eitt býli í byrjun síðasta árs og þá ákvað ég að láta slag standa og fór yfir í vínrækt sem fullt starf.“ Hann segir einhverja frumþörf fyrir að draga björg í bú drífa sig áfram. „Ég stunda líka skotveiðar í Sviss og það er alltaf alveg sérstök og einföld ánægja sem kemur af því að geta boðið fjölskyldu og vinum upp á mat og drykk sem maður hefur sjálfur sótt út í náttúruna. Ég hefði hins vegar alveg eins getað orðið ostagerðarmaður.“Stefnir á lífræna ræktun Upphaflega tók Höskuldur yfir eina litla ekru árið 2015. Hún er í þorpinu Gordemo í Tessin, ítalska hluta Sviss sem er sunnan Alpanna. „Þar er ég með Merlot-þrúgur í snarbrattri brekku mót suðri. Jarðvegurinn er í raun bara granítruðningur og klettar með smá moldarlagi ofan á.“ Árið 2017 gafst honum færi á að taka yfir stærra býli í Aargau í norðurhluta Sviss. „Næsta vor mun ég svo taka yfir annað býli á svipuðum slóðum og verð þá kominn með tæpa sex hektara og 40.000 flöskur á ári. Yfir helmingur af því landi er með Pinot Noir-þrúgum og restin er blanda af hvítum og rauðum þrúgum. Jarðvegurinn þar er leirkenndur með mikið af kalksteini og ekrurnar eru allar í hlíðum sem liggja mót suðri.“ Í ár er Höskuldur að hefja breytingarferli yfir í lífræna bíó- dýnamíska ræktun en ferlið tekur þrjú ár að hans sögn. „Það skiptir miklu máli að bera virðingu fyrir landinu og að vinna í samvinnu við öfl náttúrunnar. Við erum sannfærð um að besta leiðin til þess að búa til vín sem endurspegla heimaslóðirnar sé að vinna það á lífrænan hátt. Helsti munurinn á lífrænni og hefðbundinni ræktun er sá að maður reynir að búa til vistkerfi á ekrunni sem er í góðu jafnvægi þannig að það þurfi töluvert minna af eiturefnum til að halda skordýrum frá og sveppasýkingum niðri. Ég geri mér líka vonir um að það hafi jákvæð áhrif á gæði vínsins.“Höskuldur segir gott að finna fyrir sólinni á bakinu og svitanum á enninu úti á akrinum.Ólíkir heimar Aðspurður hvort reynsla hans úr fjármálaumhverfinu komi að góðum notum við vínrækt segir hann að reynsla sín af því að byggja upp og reka fyrirtæki komi sér vissulega vel. „En það er ekkert sérstakt við fjármálageirann sem tengist vínrækt, þannig séð. Ég hefði alveg getað fengið sömu reynslu með því að reka bakarí.“ Fjármálaheimurinn og vínræktin eru eðlilega tveir ólíkir heimar að mörgu leyti. „Afurðin sem maður býr til á skrifstofunni er miklu meira abstrakt og sýnir sig bara í tölum og pappírum. Það er einhvern veginn miklu skemmtilegra að getað haldið á afurðinni í höndunum að loknu góðu ári, geta fundið lyktina og bragðað á henni þegar ferlinu er lokið. Ekki síður er eitthvað sérstakt við að finna fyrir sólinni á bakinu og svitanum á enninu úti á akrinum. Ég hef aldrei séð eftir þessari ákvörðun minni, þetta ferli er allt búið að vera alveg meiriháttar skemmtilegt.“ Næg verkefni fram undan Verkefnin eru næg á næstunni hjá vínbóndanum unga.Næsta vor tekur Höskuldur yfir býli á svipuðum slóðum og verður þá með framleiðslugetu upp á 40.000 flöskur.Utan fyrrnefndra breytinga yfir í lífræna ræktun nefnir hann samhæfingu vinnuferla yfir mismunandi ekrur og svo að koma markaðssetningu á vínunum almennilega í gang. „Eins erum við að breyta töluvert um þrúgutegundir. Við erum með samtals fimmtán tegundir sem er allt of mikið. Mig langar að einfalda þetta og komast niður í 5-6 tegundir en þar væru í fararbroddi Pinot Noir, Merlot, Riesling og Chardonnay.“Er á heimavelli Það fer vel um Höskuld í Sviss þar sem hann býr með svissneskri eiginkonu sinni og tveimur sonum þeirra sem eru tólf og fimmtán ára. „Við bjuggum í eitt og hálft ár á Íslandi frá 2007 en við misstum af partíinu og komum bara í uppvaskið. Því fórum við aftur út til Sviss í lok árs 2008. Við kunnum mjög vel við okkur í Sviss og erum hér á heimavelli.“ Áhugasamir geta nálgast sýnishorn af framleiðslunni með árlegri áskrift í gegnum vínklúbb Hauksson Weine (www.haukssonwine.com). „Þetta er hagkvæm og þægileg lausn án milliliða. Einnig verðum við með vínsmakk á vínbarnum Port 9, Veghúsastíg 7-9 í Reykjavík, á milli kl. 14 og 16 í dag, föstudag, og á morgun, laugardag.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira