Pogba: Er ekki að hugsa um að fara frá Man. Utd Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. apríl 2018 10:00 Verður hann seldur í sumar? Sögusagnirnar eru enn á fleygiferð. vísir/getty
Það hefur mikið gengið á hjá Paul Pogba á þessari leiktíð með Man. Utd. Það hefur heldur ekki verið neitt lát á sögusögnum í kringum hann. Pogba hefur valdið vonbrigðum með spilamennsku sinni í vetur og hefur því á tíðum þurft að sætta sig við bekkjarsetu. Meðal annars í báðum leikjunum í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. „Mourinho er þjálfarinn og tekur ákvarðanirnar. Ég er leikmaður og þarf að sætta mig við það. Það er svo mitt verk að bregðast við er ég fæ tækifæri til þess að spila,“ sagði Pogba en hann var dýrasti leikmaður heims er Man. Utd greiddi 89 milljónir punda fyrir hann árið 2016. Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, sagði að Pogba gæti ekki verið ánægður með að sitja á bekknum. Í febrúar var sagt að Pogba sæi eftir því að hafa komið til United en Mourinho sagði að það væri lygi. Pep Guardiola, stjóri Man. City, sagði svo á dögunum að honum hefði staðið til boða að kaupa leikmanninn í janúar. „Mourinho hefur gert mig að fyrirliða. Hann gaf mér lyklana, að vera með ábyrgð hjá svona stóru félagi. Eins og stendur er ég hjá Man. Utd og er aðeins að hugsa um það sem er að gerast núna. Svo er HM. Félagaskipti er ekki eitthvað sem ég er að hugsa um núna.“
Enski boltinn Mest lesið „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Fótbolti Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik Handbolti Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Fótbolti Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Sjá meira