Merson byrjaði að nota kókaín á bar með stuðningsmönnum Arsenal Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. maí 2018 13:00 Merson tekur hér drykkjufagnið sitt fræga. vísir/getty
Arsenal-goðsögnin Paul Merson hefur opnað sig varðandi fíknir sínar en hann drakk, dópaði og var ofsóknaróður veðmálafíkill er verst lét. Merson hefur náð góðri stjórn á sínu lífi í dag og starfar sem sjónvarpsmaður hjá Sky Sports. „Ég var í hræðilegum vítahring. Ég veðjaði svo mikið að ég byrjaði að drekka og morgnarnir urðu svo hræðilegir,“ sagði Merson sem var orðinn ofsóknaróður. „Ég bjó tíu mínútum frá æfingasvæði Arsenal en það tók mig klukkutíma að komast á æfingu. Ef það var bíll fyrir aftan mig í 30 sekúndur þá stöðvaði ég bílinn því ég hélt að það væri einhver að koma til þess að drepa mig.“ Drykkjan leiddi til eiturlyfjaneyslu og hún hófst á sérstökum stað. „Ég fór til þess að hitta vin minn á bar. Það var rangur staður því hann var fullur af stuðningsmönnum Arsenal sem allir voru að nota eiturlyf. Þeir spurðu hvort ég vildi en ég afþakkaði. Þetta var ekkert fyrir mig,“ sagði Merson. „Ég fór heim en ég vissi strax að ég myndi fara aftur á þennan bar um næstu helgi. Þetta var furðulegasta tilfinning sem ég hef fundið fyrir. Að vita í heila viku að ég myndi fara aftur. Ég spilaði við Everton á laugardegi og skoraði laglegt mark. Ég var hátt uppi eftir leikinn og hugsaði að ég ætlaði beint á þennan bar og það gerði ég.“
Enski boltinn Mest lesið Ísland - Króatía | Þurfa að skáka Degi í stórleik á EM Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Handbolti Mátti ekki hlaupa maraþonhlaup með barnið sitt á sér Sport Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Þorsteinn inn en Andri og Elvar fyrir utan Handbolti Fleiri fréttir Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Sjá meira