Alfreð átti besta tímabil Íslendings í bestu deildum Evrópu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2018 15:30 Alfreð Finnbogason fagnar einu af tólf mörkum sínum fyrir Augsburg í vetur. Vísir/Getty
Tölfræðisíðan Who Scored hefur verið að telja niður í HM í Rússlandi eins og aðrar fótboltavefsíður og fjölmiðlar. Fólkið á síðunni hefur tekið saman pistil um hvert lið í keppninni þar sem eru teknir til þeir leikmenn sem koma heitastir inn á HM. Íslenska landsliðið er þar engin undantekning. Þeir fjórir sem eru tilnefndir hjá íslenska landsliðinu eru Alfreð Finnbogason hjá Augsburg, Jóhann Berg Guðmundsson hjá Burnley og Emil Hallfreðsson hjá Udinese. Who Scored fer eftir bestu tölfræðieinkunn leikmanna í einni af fimm bestu deildum Evrópu en það eru deildirnar í Englandi, á Spáni, á Ítalíu, í Þýskalandi og í Frakklandi. Samkvæmt þessu átti Alfreð Finnbogason besta tímabil Íslendings í fimm bestu deildum Evrópu leiktíðina 2017-18. Alfreð Finnbogason lék 22 leiki með Augsburg í þýsku deildinni og fékk 7,11 í meðaleinkunn hjá Who Scored síðunni. Jóhann Berg fékk 7,02 í meðaleinkunn fyrir 35 leiki með Burnley í ensku úrvalsdeildinni og Gylfi Þór Sigurðsson var með meðaleinkunn upp á 6,88 í 27 leikjum með Everton í ensku úrvalsdeildinni. Emil Hallfreðsson er síðan fjórði maðurinn á lista með 6,39 í meðaleinkunn. Alfreð skoraði 12 deildarmörk fyrir Augsburg og átti þátt í þremur til viðbótar. Jóhann Berg kom að 10 deildarmörkum Burnley, skoraði tvö og átti átta stoðsendingar. Gylfi skoraði 4 mörk fyrir Everton og gaf 3 stoðsendingar.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fótbolti Martröð Norðmanna heima fyrir: „Gjörsamlega hræðilegt“ Handbolti Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Enski boltinn Elliði skipti út rauðu skónum eftir rauðu spjöldin Handbolti Fleiri fréttir Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Hákon skoraði í endurkomusigri Lille Sjá meira