Gert er ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur þrefaldist að stærð í uppbyggingaráætlun fyrir næsta áratug. Spáð er mikilli fjölgun tengifarþega á þessu ári en verulega dregur úr fjölgun erlendra ferðamanna. Útlit er fyrir að farþegafjöldinn í ár muni ná þeirri tölu sem spáð var fyrir árið 2030.
Uppbyggingaráformin voru kynnt á morgunverðarfundi á Hilton hótel í morgun. Á fundinum var jafnframt kynnt uppfærð farþegaspá, þar sem m.a. kemur fram að farþegamynstur íslensku flugfélaganna hafi breyst nokkuð undanfarið.
„Þeim gengur betur að selja í flugsæti til skiptifarþega. Við erum að spá því að ekki verði 15 prósenta aukning farþega til landsins gegnum Keflavíkurflugvöll, heldur rétt um þrjú prósent, sem er töluvert skörp breyting frá rúmlega 24 prósenta aukningu í fyrra,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs ISAVIA á Keflavíkurflugvelli.
Þannig er útlit fyrir að skiptifarþegum sem fljúga hér í gegn fjölgi um 37 prósent í ár. Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri tækni- og eignasviðs Keflavíkurflugvallar, segir því að þó lægð sé í ferðaþjónustunni sé full ástæða til að stækka við flugvöllinn.
„Við teljum að það sé uppsöfnuð framkvæmdaþörf á Keflavíkurflugvelli. Árið 2012 komum við fram með þróunaráætlun sem gerði ráð fyrir því að 2030 yrðu hér tíu milljónir farþega. Við erum vonandi að sjá hér tíu milljónir farþega í ár, 2018. Þannig að við erum í farþegatölu tólf árum á undan þróunaráætluninni og hún gerði ráð fyrir því að þau mannvirki sem sýnd eru hér fyrir aftan mig, þeirra yrði þörf á þeim tímapunkti,“ segir Guðmundur Daði.
Og framkvæmdirnar eru ekkert smáræði, en til stendur að fyrsti hluti stækkunarinnar verði tekinn í notkun á næstu þremur árum.
„Fyrsti fasinn, sem er breikkun á landganginum og ný landamæri og stækkun á verslunarsvæði er í kringum 30 þúsund fermetrar sem gerir það að verkum að frá 2012 til 2021 erum við búin að framkvæma tæplega eina Smáralind á flugvellinum.“
Keflavíkurflugvöllur þrefaldast í stærð
Hersir Aron Ólafsson skrifar
Mest lesið

Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs
Viðskipti innlent

Stríð í uppsiglingu á leikfangamarkaði
Viðskipti innlent

Enn fleiri rafhlöður innkallaðar
Viðskipti erlent

Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin
Viðskipti innlent

Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu
Viðskipti innlent

Ekkert lát á verðhækkunum á olíu
Viðskipti erlent

Nýr álrisi verður til
Viðskipti erlent

Æ fleiri fyrirtæki bókfæra í dollurum
Viðskipti innlent

Eftirlaunakrísan bíður landa um heiminn allan
Viðskipti erlent

„Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““
Atvinnulíf