„Við ætlum að vinna einn, tvo, þrjá, fjóra, fimm, sex ...“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2018 23:30 LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh á "sigurhátíðinni“ sinni í júlí 2010. Vísir/Getty
Í dag er átta ára afmælisdagur einnar skrautlegustu leikmannakynningar fyrr og síðar í NBA-deildinni. Þann 9. júlí 2010 kynnti Miami Heat til leiks þá Chris Bosh og LeBron James sem höfðu þá báðir tekið á sig launalækkun og samið við félagið og um leið myndað sannkallað súperlið með Dwyane Wade. Wade tók á sig mestu launalækkunina af þeim öllum.On this date in 2010, Miami's Big 3 were introduced. pic.twitter.com/Ti0fszA1VK — ESPN (@espn) July 9, 2018 Þeir LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh mættu til leiks í partý-stemmningu í American Airlines Arena og þar voru stóru orðin ekki spöruð. „Við ætlum að vinna einn, tvo, þrjá, fjóra, fimm, sex ....“ hélt upptalning þeirra áfram við mikinn fögnuð stuðningsfólks Miami Heat sem var mætt á „sigurhátíð“ sem haldin áður en nýja liðið hafði spilað einn leik saman.Vísir/GettyÞað fór fyrir brjóstið á mörgum að sjá þá félaga fagna sigri áður en þeir unnu einn leik og í framhaldinu tók stór hluti bandarískra körfuboltaáhugamanna þessu liði mjög illa. Þeir voru kannski elskaðir í Miami en hataðir á næstum því öllum öðrum stöðum. Þeir LeBron James, Dwyane Wade og Chris Bosh unnu á endanum tvo titla saman, 2012 og 2013, en Miami Heat liðið komst samt í lokaúrslitin öll fjögur árin. Sumarið 2014 tilkynnti LeBron James að hann væri farinn aftur „heim“ til Cleveland Cavaliers en Dwyane Wade og Chris Bosh héldu áfram að spila með Miami Heat. Chris Bosh glímdi við veikindi tímabilið 2014-15 og varð á endanum að leggja skóna á hilluna.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira