Rodman, sem er orðinn 57 ára, er gamall vinur hins Norður-Kóreska leiðtoga. Hann er á meðal fárra Vesturlandabúa sem hefur verið boðið til fundar leiðtogans.
Rodman segir í viðtali við US Weekly að Kim beri virðingu fyrir sér og sýni sjónarmiðum sínum skilning. Hann segist þá vera mikill aðdáandi tónlistar Kanye West og beri auk þess mikla virðingu fyrir rapparanum. Í ljósi þessa vilji hann bjóða honum í ferðalag til Norður-Kóreu. Sky News greinir frá þessu.
„Veistu það, ég ætla að bjóða honum með mér í næstu ferð til Norður-Kóreu,“ segir Rodman sem viss um að West verði fyrir miklum innblæstri í heimsókn sinni til landsins.
„Ef hann vill búa til hljómplötu um landið þá verður hann í Norður-Kóreu í sex til sjö daga svo hann sjái allt það sem er í gangi þar.“
Let's make history baby! @kanyewest pic.twitter.com/4hNpSGOa9y
— Dennis Rodman (@dennisrodman) July 14, 2018
Á safni í Pyongyang sem tileinkað er gjöfum sem einræðisherrann hefur hlotið í gegnum tíðina frá leiðtogum annarra ríkja er til sýnis körfubolti með eiginhandaráritun frá Michael Jordan sem lék fyrir Chicago Bulls. Kim Jong Il fékk körfuboltann að gjöf frá Madeleine Albright, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna árið 2000.
Í síðustu viku fékk West áritaða Chicago Bulls treyju að gjöf frá Rodman. West birti síðan mynd af gjöfinni á Twittersíðu sinni með orðsendingu til Rodmans. Hann sagði körfuboltakappann vera mikla fyrirmynd. Rodman væri í sífellu að „brjóta múra með sjálfstæðri hugsun sinni“.
Thank to one of my biggest inspirations … always breaking barriers with independent thought pic.twitter.com/WQLKCG7tXM
— KANYE WEST (@kanyewest) July 10, 2018
Rodman og West hafa báðir hælt Donald Trump, Bandaríkjaforseta og skartað derhúfu með slagorði kosningabaráttu Trumps: „Gerum Bandaríkin glæst á ný“.
Dennis Rodman var 14 ár í NBA-deildinni og lék meðal annars með Detroit Pistons, San Antionio Spurs, Chicago Bulls, Los Angeles Lakers og Dallas Maverics. Rodman varð fimm sinnum NBA-meistari með sínum liðum.