Greinendur ráðgjafafyrirtækisins Capacent hafa lækkað verðmat sitt á TM um ríflega sjö prósent og meta nú gengi hlutabréfa tryggingafélagsins á 32,2 krónur á hlut. Til samanburðar stóð gengi bréfanna í 31,65 krónum á hlut við lokun markaða í gær.
Í fyrra verðmati Capacent, frá því í apríl, voru bréf tryggingafélagsins metin á 34,7 krónur á hlut. Lakari grunnrekstur TM síðustu ár er helsta ástæða þess að verðmat greinenda Capacent hefur farið lækkandi undanfarið.
Þeir benda á að sögulega séð hafi grunnrekstur TM verið sterkari en annarra tryggingafélaga en svo virðist sem félagið sé að missa forystuna. Þannig hafi samsett hlutfall félagsins, það er hlutfall rekstrar- og tjónakostnaðar af eigin iðgjöldum, verið að meðaltali 96,2 prósent frá árinu 2010 en síðustu tólf mánuði hafi það hins vegar verið 100,3 prósent. Samsett hlutfall skráðu tryggingafélaganna þriggja sé alltaf að nálgast hvert annað.
Lækka verðmat sitt á TM

Tengdar fréttir

11 milljarða kaup TM á Lykli úr sögunni
Fallið hefur verið frá einkaviðræðum Tryggingamiðstöðvarinnar um kaup á fjármálafyrirtækinu Lykli fjármögnun.

Kaupa íslenskan fjártæknirisa á mörg hundruð milljónir
Hollenskt fyrirtæki í eigu tveggja fyrrverandi starfsmanna Landsbankans hefur keypt fjártæknifyrirtækið Libra sem er leiðandi á sínu sviði á Íslandi. Stofnuðu Five Degrees eftir fjármálahrunið og keyptu tölvukerfi Landsbankans í Lúxemborg af þrotabúinu. Kauphöllin seldi Libra árið 2009 til starfsfólks og fjárfesta.

Annað tryggingarfélag sendir frá sér afkomuviðvörun
Tryggingamiðstöðin hefur send frá sér afkomuviðvörun eftir að í ljós kom að afkoma TM á fjórðungnum verður umtalsvert verri en rekstrarspá félagsins gerði ráð fyrir.