Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur lagt blessun sína yfir sátt sem Verðbréfaeftirlit Bandaríkjanna, rafbílaframleiðandinn Tesla og Elon Musk, stofnandi fyrirtækisins, hafa náð. Samkvæmt henni greiðir Musk tuttugu milljónir dollara í sekt og stígur til hliðar sem stjórnarformaður Tesla í þrjú ár.
Musk var sakaður um markaðsmisnotkun þegar hann sendi frá sér „fölsk og misvísandi“ tíst í byrjun ágúst þar sem hann sagðist ætla að taka Tesla af markaði og að hann hefði fjármagn til þess.
Með sáttinni þarf Tesla að skipa óháðan stjórnarformann, tvo óháða forstöðumenn og nefnd til þess að hafa eftirlit með samskiptum Musk. Tesla samþykkti ennfremur að greiða tuttugu milljónir dollara í sekt eins og Musk, jafnvel þó að fyrirtækið væri ekki sjálft ákært fyrir svik, að því er segir í frétt Reuters.
Sátt í máli bandarískra yfirvalda gegn Tesla og Elon Musk

Tengdar fréttir

Elon Musk stígur til hliðar sem stjórnarformaður Tesla
Elon Musk mun stíga til hliðar sem stjórnarformaður Tesla fyrirtækisins. Hann verður þó forstjóri fyrirtækisins áfram. Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur sektað Tesla fyrirtækið um 20 milljónir Bandaríkjadala og Elon Musk um sömu upphæð.

Elon Musk kærður fyrir svik
Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur kært Elon Musk, forstjóra bílaframleiðandans Tesla, fyrir svik í tengslum við tíst hans um að taka fyrirtækið af markaði.

Stefna Tesla og Elon Musk vegna markaðsmisnotkunar
Skortsölumenn segja að yfirlýsing Elon Musk um að hann íhugaði að taka Tesla af markaði hafi verið misvísandi og kostað þá hundruð milljóna dollara.