„Krakkar lesa Andrés önd, Syrpuna og allt hitt þar til þau eru 10-12 ára en þá er það ekki töff lengur og ögrar ekki lengur lesendanum. Þá er ekkert annað sem kallar til þeirra. Við vonum að Leðurblökumaðurinn, þetta er nú krúnudjásn DC Comics og hefur laðað til sín marga frábæra höfunda, bæti úr því,“ segir hann.

„Yndislestur unglinga og krakka er að hrapa, sérstaklega hjá drengjum. Við teljum að það sé vegna þess að það er ekki framboð á skemmtilegu lesefni. Það er vandað til verks og umbrot og prentun eru eins og best þekkist í þessum bransa. Það er mikill metnaður hjá okkur að þetta sé flott og að það sé ekki mikill munur á þessu og frumútgáfunni.“
Fyrsta blaðið verður ein saga, um 20 blaðsíður. Fyrsta stóra blaðið, eða bókin, kemur svo út í desember og mun innihalda fimm sögur og verða um og yfir 100 blaðsíður. Hægt verður að gerast áskrifandi eða kaupa gripinn í lausasölu. Nexus boðar til fagnaðar vegna útgáfunnar sem Krummi segir að verði vonandi mikið fjör.
„Mín kynslóð ólst upp við Tarzan, Lukku-Láka, Ástrík en þetta er ekki til fyrir mína krakka. Blaðið er flottara en við þorðum að vona og það verður vonandi mikið húllumhæ þegar það verður kynnt fyrir öllum.“