Selfyssingar byrjaðir að líta í kringum sig eftir nýjum þjálfara Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. desember 2018 06:00 Patrekur Jóhannesson á bara nokkra mánuði eftir sem þjálfari Selfyssinga. vísir/bára
Patrekur Jóhannesson yfirgefur Selfoss í Olís-deild karla í handbolta eftir tímabilið eins og greint var frá í gær en hann tekur við Danmerkurmeisturum Skjern næsta sumar. Patrekur hefur vakið mikla athygli með ungt lið Selfyssinga sem að varð í öðru sæti í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og komst í undanúrslit bikarsins og í úrslitakeppninni þar sem að það tapaði í oddaleik fyrir FH. Selfyssingar þurfa nú að finna sér nýjan þjálfara til að taka við liðinu og þó þeir hafi nægan tíma er ekki seinna vænna en að fara að skoða hvað gerist næsta sumar. „Við skoðum þetta í rólegheitunum en erum auðvitað farin að líta í kringum okkur,“ segir Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar Selfoss, í viðtali við Sunnlenska.is. „Hann er búinn að halda okkur upplýstum um samskiptin við Skjern og við erum að sjálfsögðu ánægð fyrir hans hönd. Þetta er stórt tækifæri fyrir hann og að svona öflugt lið velji hann sem þjálfara finnst mér líka vera töluverð viðurkenning á því góða starfi sem verið er að vinna hjá deildinni hér á Selfossi,“ segir Þórir. Selfoss tapaði óvænt fyrir Akureyri í lokaumferð Olís-deildarinnar fyrir jól og fer í jólafríið í þriðja sæti en það er einnig komið í átta liða úrslit bikarsins.
Olís-deild karla Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Fleiri fréttir „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Sjá meira