Í síðustu viku var samþykkt vopnahlé stríðandi fylkinga í hafnarborginni Hodeida. Vopnahlé í borginni er sérstaklega mikilvægt því stærstur hluti matar og hjálpargagna fer þar í gegn. Vopnahlé tók gildi á miðnætti síðastliðinn mánudag. „Eftir að vopnahlé tók gildi hefur dregið úr átökum á svæðinu og vonir eru bundnar við að hægt verði að koma bráðnauðsynlegum hjálpargögnum inn í landið en talið er um 20 milljónir Jemena þurfi á aðstoð að halda,“ segir Teitur.
Hann nefnir að Rauði krossinn hafi ásamt öðrum hjálparsamtökum haft milligöngu um lausn Jemena sem haldið hefur verið í gíslingu vegna átakanna. Talið er að þúsundum Jemena sé haldið í gíslingu og hefur náðst samkomulag milli stríðandi fylkinga að sleppa gíslunum. „Þá tekur við brýnt starf hjálparstofnana við að sameina börn og fjölskyldur sem hafa orðið viðskila á átakasvæðum líkt og fram kemur í myndbandi Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) sem Rauði krossinn á Íslandi hefur fengið að þýða og birta,“ segir Teitur.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.