Fyrirhugað er að bjóða starfsmönnum GAMMA Capital Management að kaupa áskriftarréttindi að hlutum í Kviku banka í kjölfar yfirtöku fjárfestingarbankans á verðbréfafyrirtækinu. Er af þeim sökum stefnt að því að auka heimild bankans til þess að gefa út slík réttindi á næsta aðalfundi. Starfsmönnum Kviku hefur hingað til staðið til boða að kaupa sams konar áskriftarréttindi í bankanum.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í kynningu Kviku banka vegna kaupanna á GAMMA sem fjallað var um á hluthafafundi bankans síðdegis í gær.
Í kynningunni kemur jafnframt fram að Kvika hyggist halda eftir hluta kaupverðsins, nánar tiltekið 200 milljóna króna greiðslu árangurstengdra þóknana, til þess að verja sig fyrir mögulegu tjóni vegna sekta, dómsmála eða annarra krafna sem rekja megi til atvika sem eigi sér stað fyrir kaupin.
Eins og fram hefur komið er kaupverðið á GAMMA ríflega 2,4 milljarðar króna miðað við bókfært virði árangurstengdra þóknana hjá verðbréfafyrirtækinu í lok júní síðastliðins en verðið getur breyst til hækkunar eða lækkunar eftir því hvernig rekstur og verðmæti fyrirtækisins þróast á næstu misserum.
Fram kemur í kynningu Kviku að ekki liggi fyrir áform um að sameina GAMMA og önnur félög í samstæðu fjárfestingarbankans. Þó sé ljóst að mikil tækifæri séu fólgin í því að samþætta ýmsa hluta starfsemi félagsins við starfsemi Kviku en í því sambandi er meðal annars nefnd sameining á sjóðum sem eru sambærilegir hjá GAMMA og Júpíter, dótturfélagi Kviku, og útvistun á ýmissi stoðþjónustu til Kviku.
Gert er ráð fyrir að áhrif kaupanna á GAMMA á afkomu Kviku fyrir skatta verði um 300 til 400 milljónir króna á ársgrundvelli.
Eins og fram kom í tilkynningu Kviku til Kauphallarinnar í gær hefur stjórn bankans ákveðið að stefna að skráningu hlutabréfa bankans á aðalmarkað Kauphallarinnar fyrir lok fyrsta fjórðungs næsta árs. Ekki er gert ráð fyrir að hlutafjárútboð verði haldið samhliða skráningunni.
Fá að kaupa áskriftarréttindi í Kviku
Kristinn Ingi Jónsson skrifar

Mest lesið


Síðasti dropinn á sögulegri stöð
Viðskipti innlent



Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi
Viðskipti innlent

Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin
Viðskipti erlent

Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu
Viðskipti innlent


Ríkið eignast hlut í Norwegian
Viðskipti erlent

Svandís tekur við Fastus lausnum
Viðskipti innlent