Lífið

Núllið gallerý er komið til að vera

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Gamla almenningssnyrtingin breytist í menningarperlu á besta stað.
Gamla almenningssnyrtingin breytist í menningarperlu á besta stað.
Gömlu klósettin í Bankastræti eða Bankastræti núll eins og þau hafa verið kölluð hafa nú um nokkurt skeið annars vegar hýst Pönksafnið og hins vegar spilasalinn Fredda. Fredda var lokað fyrir nokkru og hefur því annað rýmið staðið autt um nokkra stund en nú á föstudaginn verður breyting á – þar verður opnað Núllið gallerý þar sem hugmyndin er að listamenn geti átt samastað fyrir list sína.

„Planið með rýmið er allt að mótast. Við opnuðum þarna Fredda tímabundið í svona safnabúningi, sem var ágætis pæling sem gekk ekki upp... eins og skáldið sagði. Freddi mun samt lifa áfram í öðru rými í framtíðinni. En Núllið, það hefur alltaf verið fílingur hjá okkur fyrir því að hafa þetta sem opið vinnurými, stúdíó eða gallerí. Nú er allt á fleygiferð við að standsetja þetta sem sýningarrými og það verður klárt á föstudaginn,“ segir Geoffrey Þór Huntingdon-Williams, framkvæmdastjóri Prikssamsteypunnar, sem fer með eignarhald á Núllinu.

Föstudaginn 21. desember verður rýmið opnað með útgáfuhófi Þórsteins Sigurðssonar ljósmyndara vegna bókarinnar Juvenile Bliss. Eftir það heldur Núllið áfram að vera menningarrými á besta stað.

„Þarna verður sýningahald af öllu tagi þar sem borgarbúum verður veitt þjónusta í formi menningar. Þetta er auðvitað á besta stað í bænum. Við ætlum að sjá hvert þetta mótast í framhaldinu en þetta mun alltaf vera rými fyrir listamenn – hvort þetta verður staðbundið sýningarrými með sýningarstjóra, hvort við munum leigja þetta út til listamanna mjög hagstætt í styttri tíma eða hvað, það mun koma í ljós. Það er strax byrjað að koma inn fullt af fyrirspurnum frá fólki sem bæði hefur áhuga á að sýna í rýminu og skoða það nánar. Eitt er víst og það er að Núllið er komið til að vera.“










Fleiri fréttir

Sjá meira


×