Nú þegar flestar tölur um sölu bíla í heiminum í fyrra eru orðnar ljósar er forvitnilegt að skoða hvaða bílgerðir seljast best í heiminum öllum. Líkt og fyrri ár er það Toyota Corolla sem trónir á toppi listans og það með ríflega 100.000 bíla forystu á næsta keppinaut, Ford F-Series.
Af Corolla bílnum seldust alls 1.181.445 eintök í fyrra, en 1.080.757 bílar af Ford F-Series, en flestir þeirra seldust náttúrulega í heimalandinu Bandaríkjunum.
Þessi gríðarlega sala Toyota Corolla er 66 sinnum meiri en sala allra nýrra bíla á Íslandi í fyrra, sem nam tæplega 18.000 bílum og myndi því duga til sölu nýrra bíla hérlendis í 66 ár. Sala 10 söluhæstu bílgerða heims í fyrra var á endanum svona:
1. Toyota Corolla 1.181.445
2. Ford F-Series 1.080.757
3. Toyota RAV4 837.624
4. Honda Civic 823.169
5. Volkswagen Tiguan 791.275
6. Volkswagen Golf 789.519
7. Honda CR-V 747.646
8. Volkswagen Polo 725.463
9. Toyota Camry 661.383
10. Chevrolet Silverado 651.090
Það kemur ekki á óvart að tveir stærstu bílaframleiðendur heims, Toyota og Volkswagen Group, eiga hvor sínar þrjár bílgerðirnar á lista yfir 10 söluhæstu bílgerðir, en Honda á einnig tvo bíla á listanum.
Síðustu tveir bílarnir á listanum eru svo pallbílar sem seljast sem aldrei fyrr í Bandaríkjunum og víðar. Annar þeirra er næstsöluhæsta bílgerð heims, en hinn vermir neðsta sætið á lista 10 söluhæstu. Það eru margir þekktir bílaframleiðendur sem framleiða minna en nemur sölu bílsins í 10. sætinu á þessum lista. Þá er sala Toyota Corolla bílsins í fyrra meiri en öll sala Mitsubishi á sama tíma.
