Ragna Sara segist hafa fyllst stolti og ánægju þegar hún fékk tölvupóst frá forsetaembættinu, fyrst með fyrirspurnum varðandi hillurnar og í framhaldi um þá ákvörðun að hafa þær sem verðlaunagripi.

Í upphafi samstarfs vöruhönnuðarins Jóns Helga Hólmgeirssonar og FÓLKs var lagt upp með að hanna vöru sem færi eftir viðmiðum um sjálfbærni í hönnun.
„Við vildum fá tækifæri til að þróa vörur sem fylgdu hugmyndafræði sjálfbærrar hönnunar. Í því felst viðurkenning á því tækifæri sem við höfum með hönnun og framleiðslu vara að skapa samfélag sem hefur minni neikvæð umhverfisáhrif og betri jákvæð samfélagsáhrif en við sjáum í dag. Þessi hugsun þarf að vera til staðar alveg frá upphafi hönnunarferlisins og lögðum við upp með að stuðla að þessu í öllu lífsferli vörunnar, það er hönnun og þróun, framleiðslu, flutningum, notkun og förgun vörunnar,“ segir Ragna Sara.

Góð viðbrögð erlendis
Ragna segir undanfarna mánuði hafa verið mjög viðburðaríka.„Í janúar tókum við í fyrsta sinn þátt sem sýnendur á alþjóðlegri vörusýningu. Við erum að sýna þær tvær vörulínur sem við erum nú þegar með í sölu, Urban Nomad hillurnar og hluti úr marmara sem við köllum Lifandi hluti, eftir Ólínu Rögnudóttur vöruhönnuð. Á Maison & Objet sýningunni í París fengum við frábærar viðtökur. Þetta er rosalega stór sýning með hátt í 100.000 gesti og var stöðugur straumur af fólki á básnum okkar. Við fengum góða kontakta þar og vonandi fæðast ný viðskiptasambönd út úr þeirri sýningu.“
Í síðustu viku voru vörur FÓLKs svo til sýnis á stærstu hönnunarsýningu Norðurlanda, Stockholm Furniture Fair.
„Það var einnig mjög góð upplifun og við fengum virkilega góð viðbrögð. Við horfumst samt sem áður í augu við að það er langtímaverkefni að komast inn á nýja markaði, en við erum bjartsýn eftir þessar fyrstu sýningar og finnum það á viðbrögðunum að við erum að skapa eitthvað sem er eftirsóknarvert og spennandi.“