Allir með á æfingu í Peralada Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Peralada skrifar 19. mars 2019 11:30 Rúrik Gíslason og Aron Einar Gunnarsson í upphitun í morgun. Vísir/E. Stefán
Íslenska landsliðið í knattspyrnu æfði í morgun á velli C.F. Peralada í samnefndum smábæ í norðausturhluta Spánar. Hér mun landsliðið dvelja þar til á fimmtudag en degi síðar leikur það fyrsta leik sinn í undankeppni EM 2020, gegn Andorra. Allir leikmenn íslenska landsliðsins gátu tekið þátt í æfingunni í dag en Tom Joel, nýr styrktarþjálfari liðsins, stýrði upphitun af mikilli röggsemi. Joel tók nýverið við starfinu af Sebastian Boxleitner. Samkvæmt upplýsingum frá KSÍ er ekki annað að heyra en að allir séu klárir í slaginn á föstudag, líka Alfreð Finnbogason sem hefur verið frá í talsverðan tíma vegna meiðsla. Alfreð spilaði allan leikinn í 3-1 sigri Augsburg á Hannover 96 í þýsku 1. deildinni um helgina. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá æfingunni í morgun en hún var opin fjölmiðlum fyrsta stundafjórðunginn.Vísir fylgir eftir strákunum okkar á leið þeirra á lokakeppni EM 2020 í knattspyrnu. Stöð 2 Sport sýnir fjölda leikja í undankeppninni næstu daga, fylgstu með dagskránni á stod2.is.Tom Joel, styrktarþjálfari.Vísir/E. StefánAron Einar Gunnarsson og félagar hans í upphituninni.Vísir/E. StefánÆft var á heimavelli CF Peralada.Vísir/E. StefánGylfi Þór Sigurðsson.Vísir/E. Stefán
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Evrópa leiðir baráttuna um Ryder bikarinn Sport Einföld aðgerð varð að fimm mánaða ferli Sport Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Fótbolti NFL leikir á Maracanã næstu fimm árin Sport Kane skoraði hundrað mörk á methraða Fótbolti KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Handbolti Stjarnan sneri leiknum og lagði FH Handbolti Dagskráin í dag: Ryder bikarinn, enski boltinn og baráttan í Bestu Sport Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Enski boltinn Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Golf Fleiri fréttir Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Víkingur vann bikarinn úr aukaspyrnum Kane skoraði hundrað mörk á methraða Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ „Held við séum búnir að sjúga karamelluna nægilega mikið“ Lofar æðislegum leik Palmer frá næstu þrjár vikurnar Flottustu mörkin hjá Newcastle og Arsenal: Snilld Bergkamps og þrumufleygur Tiotés Arnar ekki áfram með Fylki Þjálfari Daníels og Arnórs rekinn Man. Utd tryggir sér aftur táning frá S-Ameríku en fær hann ekki strax Trump hikar ekki við að færa leiki á HM úr hættulegum borgum Sjáðu Stjörnuna stöðva partýið, bombur Bergdísar og dramað í Dalnum „Erfitt að kveðja allt fólkið í Krikanum“ Busquets stígur niður af sviðinu Sjáðu mörkin: Sævar á skotskónum en Giroud með sigurmarkið Sjáðu brotið sem Blikar eru brjálaðir yfir Börsungar halda í við Madrídinga Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 3-0 | Þægilegt hjá Þór/KA Villa vann loksins en Watkins rúinn sjálfstrausti Úr svartnætti í sólarljós „Mjög ljót meiðsli eftir slæma og óþarfa tæklingu“ Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 3-2 | Dramatík í Dalnum Látinn eftir höfuðhögg í leik Uppgjörið: FH - Valur 1-1 | Allt jafnt og Blikar nær titli Spilaði fyrsta leikinn í tvö ár: „Er í gervigrasskóm og hef ekki snert gras síðan 2023“ Giroud tryggði sigurinn eftir mark Sævars Högg fyrir KR-inga í fallbaráttunni Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 1-2 | Stjarnan vann sanngjarnt og titillinn bíður betri tíma Trump vill koma í veg fyrir að UEFA banni Ísrael Sjá meira