Flugmenn stærsta flugfélags heims krefjast meiri þjálfunar svo endurheimta megi traust á MAX-vélunum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. apríl 2019 22:31 American Airlines er stærsta flugfélag heims. Vísir/Getty
Flugmenn American Airlines hafa varað flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum við því að fyrirhuguð þjálfunaráætlun vegna uppfærslu á stjórnkerfi 737 MAX-vélanna sé ekki fullnægjandi að þeirra mati. Þetta kemur fram í bréfi sem Allied Pilots samtökin hafa sent flugmálayfirvöldum í Bandaríkunum en flugmenn American Airlines, stærsta flugfélags í heimi, eru meðlimir í samtökunum. Flugfélagið er einn helsti kaupandi á 737 MAX-vélunum. Boeing finnur nú hörðum höndum að því að uppfæra stjórnkerfi 737 MAX-vélanna svo aflétta megi flugbanni á vélunum eftir tvö mannskæð flugslys í Eþíópíu og Indónesíu. Uppfærslan og þjálfunaráætlun vegna hennar bíður nú lokasamþykkis flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum. Sérfræðingar í sérstakri nefnd flugmálayfirvalda telja að flugmenn þurfi aðeins tölvuþjálfun til þess að ná skilja MCAS-kerfið svokallaða, sem talið er hafa spilað stóra rullu í flugslysunum tveimur. Kerfinu er ætlað að koma í veg fyrir ofris en virðist hafa tekið völdin af flugmönnum í flugslysunum tveimur.Hluti þeirra véla sem bíða á jörðu niðri.AP/Elaine ThompsonFlugmenn í Allied Pilots telja hins vegar mikilvægt að gert sé ráð fyrir tíma í flughermi í þjálfunaráætlunni. EKki sé fullnægjandi að fá tölvuþjálfun til þess að endurheimta traust flugmanna og almennings á flugvélinni, að því er segir í frétt Reuters um bréf Allied Pilots. Kalla þeir eftir því að flugmenn fái þjálfun í flughermum sem líki eftir þeim aðstæðum sem flugmenn Lion Air og Ethiopian Airlines stóðu frammi fyrir er flugvélarnar sem þeir stýrðu hröpuðu. Nái kröfur flugmanna American Airlines fram að ganga gæti það tafið afléttingu flugbannsins á MAX-vélunum enda mun það taka dágóðan tíma að skipuleggja æfingar í flughermum. Forstjóri American Airlines segir þó að flugfélagið muni hefja flug með vélunum um leið og bandarísk flugmálayfirvöld aflétta flugbanninnu, jafn vel þó að flugbanninu hafi ekki verið aflétt í öðrum ríkjum og svæðum um heim allan.
Bandaríkin Boeing Fréttir af flugi Tengdar fréttir Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur vegna stýrikerfisgalla í Boeing 737 MAX 8. Flugfélagið hefur keypt níu slíkar þotur frá Boeing en þær eru kyrrsettar sem stendur. 25. apríl 2019 14:44 Forstjóri Boeing segir félagið ekki hafa gert mistök við hönnun MAX-vélanna Dennis Muilenberg, forstjóri Boeing, segir að flugvélaframleiðandinn hafi ekki gert nein tæknileg mistök við hönnun Boeing 737 MAX-vélanna sem eru nú í flugbanni um allan heim vegna tveggja mannskæðra flugslysa. 24. apríl 2019 22:18 Reiknað með að forstjóri Boeing verði „grillaður“ á aðalfundi félagsins Aðalfundir Boeing hafa ekki verið sérstaklega fréttnæmir undanfarin ár en búist er við að breyting verði á því á morgun er aðalfundur félagsins verður haldinn í Chigaco. 28. apríl 2019 21:30 Þrjár MAX-vélar Icelandair safna ryki við Boeing Field Enn er alls óvíst hvenær MAX-flugvélar bandaríska flugframleiðands Boeing frá grænt ljós á að hefja sig til lofts á ný. Óafhentar vélar hrannast nú upp við verksmiðju Boeing í grennd við Seattle. 16. apríl 2019 15:30 Mest lesið Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Viðskipti innlent Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent 24 ára milljónamæringur: Með eitt par af hnífapörum, einn disk og örbylgjuofn Atvinnulíf Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur vegna stýrikerfisgalla í Boeing 737 MAX 8. Flugfélagið hefur keypt níu slíkar þotur frá Boeing en þær eru kyrrsettar sem stendur. 25. apríl 2019 14:44
Forstjóri Boeing segir félagið ekki hafa gert mistök við hönnun MAX-vélanna Dennis Muilenberg, forstjóri Boeing, segir að flugvélaframleiðandinn hafi ekki gert nein tæknileg mistök við hönnun Boeing 737 MAX-vélanna sem eru nú í flugbanni um allan heim vegna tveggja mannskæðra flugslysa. 24. apríl 2019 22:18
Reiknað með að forstjóri Boeing verði „grillaður“ á aðalfundi félagsins Aðalfundir Boeing hafa ekki verið sérstaklega fréttnæmir undanfarin ár en búist er við að breyting verði á því á morgun er aðalfundur félagsins verður haldinn í Chigaco. 28. apríl 2019 21:30
Þrjár MAX-vélar Icelandair safna ryki við Boeing Field Enn er alls óvíst hvenær MAX-flugvélar bandaríska flugframleiðands Boeing frá grænt ljós á að hefja sig til lofts á ný. Óafhentar vélar hrannast nú upp við verksmiðju Boeing í grennd við Seattle. 16. apríl 2019 15:30