Jákvæð teikn á lofti með mætinguna í Pepsi Max-deildinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. maí 2019 14:00 Svo margir mættu á Breiðablik á móti ÍA að gamla stúkan í Kópavogi var full. vísir/vilhelm
Mætingin á fyrstu fimm umferðirnar í Pepsi Max-deild karla í fótbolta er aðeins betri en á sama tíma í fyrra en alls hafa 31.256 áhorfendur sótt leikina 30 í fyrstu fimm umferðunum sem gerir 1.042 áhorfanda að meðaltali á hvern leik. Á sama tíma í fyrra höfðu 1.019 áhorfendur mætt á hvern leik að meðaltali en áhorfendafjöldi jókst um 20 að meðaltali á hvern leik frá 2017 til 2018. Hann fór úr 838, þeim lægsta á öldinni, í 858 sem er næstversta talan frá aldamótum. Góðu fréttirnar eru að áhorfendafjöldinn hefur ekki farið minnkandi frá fyrstu umferð eins og í fyrra. Þá mættu 1.464 á fyrstu umferðina en eftir það náðist aldrei aftur að safna yfir 1.000 manns að meðaltali á hverja umferð. Töluvert færri mættu aða meðaltali á fyrstu umfeðrina í ár heldur en í fyrra en aðsóknin hefur verið jafnari og betri. Þrisvar sinnum í fyrstu fimm umferðunum hefur áhorfendafjöldinn farið yfir 1.000 manns að meðaltali en hann tók stökk úr 877 upp í 1.116 frá fjórðu umferð til þeirrar fimmtu. Ríflega 2.000 manns sóttu toppslag Breiðabliks og ÍA á Kópavogsvelli á sunnudagskvöldið en það var í fyrsta sinn síðan í fyrstu umferðinni í fyrra þegar að Valur og KR mættust sem að áhorfendafjöldi á einum leik fer yfir 2.000 manns.Mætingin eftir fimm umferðir 2018: 1. umf 1.464 2. umf 986 3. umf 983 4. umf 780 5. umf 882Meðaltal: 1.019Mætingin eftir fimm umferðir 2019: 1. umf 1.130 2. umf 1.246 3. umf 841 4. umf 877 5. umf 1.116Meðaltal: 1.042
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira