Skóflustunga að nýju hátæknisetri var tekin í nóvember 2013 og húsið var formlega tekið í notkun við hátíðlega athöfn í júní 2016. Hjá Alvotech starfa um 330 starfsmenn frá 20 þjóðernum á Íslandi, í Sviss og í Þýskalandi. Fyrirtækið stefnir að því að vera í fremstu röð á heimsvísu á sínu sviði og hefur nú þegar hafið klínískar rannsóknir fyrir sitt fyrsta lyf.

„Við erum að auglýsa 100 störf núna til umsóknar þar sem reynsla og bakgrunnur umsækjanda er nokkuð fjölbreyttur. Við erum bæði að leita að reynsluboltum og ungu og efnilegu fólki. Fólki sem hefur metnað og áhuga á að vinna undir leiðsögn vísindamanna Alvotech og móta framtíðina með okkur. Nánast öll störf sem nú eru í boði eru miðuð að einstaklingum með háskólamenntun á sviði líf-, raun- og lyfjavísinda eða verkfræði. Við finnum fyrir miklum áhuga á fyrirtækinu og því sem við höfum verið að gera og því gaman að geta tilkynnt um 100 nýjar stöður.“

Hátæknisetur Alvotech er hluti af Vísindagörðum Háskóla Íslands og er þannig staðsett á besta stað í borginni þar sem mikil nýsköpun á sér stað á hverjum degi. Setrið er um 13 þúsund fermetrar að stærð og fyrirtækið vinnur í nánu samstarfi við háskólasamfélagið um mótun menntunar á sviði líftækni og lyfjavísinda ásamt ýmsum öðrum verkefnum.

„Ég hef starfað hjá fyrirtækinu í fjögur ár og fengið að taka þátt í því að undirbúa Alvotech og innviði þess undir framtíðarvöxt og markaðssetningu nýrra líftæknilyfja. Það eru í raun forréttindi að vakna á morgnana og sækja vinnu hjá fyrirtæki eins og Alvotech þar sem nýsköpun á sér stað á hverjum einasta degi.
Við vinnum öll að því sameiginlega markmiði að auka lífsgæði fólks um allan heim með nýjum líftæknilyfjum þar sem aðgengi fólks mun aukast mikið með okkar innkomu á markaðinn. Við erum stolt yfir því að getað tekið þátt í því að móta framtíðina í líftækni á heimsvísu og að Ísland geti verið þar í leiðandi hlutverki.“
Gulir föstudagar
Hildur Hörn segir mikilvægt að móta skapandi og lifandi vinnuumhverfi fyrir vísindamenn og sérfræðinga fyrirtækisins. Innan fyrirtækisins sé meðal annars líkamsræktarsalur, spinningsalur og starfsmönnum bjóðist meðal annars að fá nudd á álagstímum.

