Gareth Southgate: Mjög stórt ef okkur tekst að byrja á því að vinna titla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2019 11:15 Gareth Southgate. Skjámynd
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, talaði um mikilvægi þess fyrir hans lið að vinna Þjóðadeildina og fylgja þar með eftir góðum árangri á heimsmeistaramótinu í Rússlandi þar sem enska landsliði fór alla leið í undanúrslitin. Gareth Southgate mætir með lið sitt á móti Hollendingum í kvöld í seinni undanúrslitaleik Þjóðadeildarinnar. Leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport klukkan 18.45 og þar mun sigurvegarinnar tryggja sér sæti í úrslitaleiknum á móti Portúgal á sunnudaginn. Gareth Southgate ræddi leikinn við Holland á blaðamannafundi í gær. „Við vitum að heimsmeistarakeppnin er stærst og svo kemur Evrópukeppnin en þetta er ný keppni og við viljum fara að venja okkur við það að fara vinna titla,“ sagði Gareth Southgate. Enska landsliðið sló í gegn á HM í Rússlandi síðasta sumar og liðið er fullt af ungum spennandi framtíðarleikmönnum sem ættu að geta haldið liðinu í titilbaráttunni á næstu stórmótum. Liðið tapaði bæði undanúrslitaleiknum og leiknum um þriðja sætið á HM 2018 og núna vill Gareth Southgate meira. „Það er kominn tími á það fyrir okkur að fara að berjast um titlana og þetta er kjörið tækifæri til að sýna hversu langt verið erum komnir sem lið. Það er vissulega merkilegt að sjá okkur vera komnir alla þessa leið en við eigum samt langa leið eftir enn þá,“ sagði Gareth Southgate. „Það væri mjög stórt fyrir okkur í enska landsliðinu ef okkur tekst að byrja á því að vinna titla og förum að vinna stóra leiki. Það er einmitt vaninn sem við viljum og þar viljum við líka að væntingarnar séu,“ sagði Southgate. Hér fyrir neðan má sjá hvað hann sagði á blaðamannafundinum í gær.Klippa: Gareth Southgate: Mjög stórt ef okkur tekst að byrja á því að vinna titla
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Fleiri fréttir Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Sjá meira