Hornið hans Rúnars réði úrslitum í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2019 14:56 Rúnar Már Sigurjónsson. EPA/ENNIO LEANZA
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í Astana unnu 1-0 sigur á rúmenska liðinu CFR Cluj í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn fór fram á heimavelli Astana liðsins í Kasakstan. Seinni leikurinn er í Rúmeníu og sigurvegarinn mætir Maccabi Tel-Aviv frá Ísrael í næstu umferð. Rúnar Már Sigurjónsson spilaði allan leikinn á miðju Astana en hann kom til liðsins frá svissneska félaginu Grasshopper á Þjóðhátíðardaginn 17. júní síðastliðinn. Astana hafði heppnina með sér í fyrri hálfleiknum þegar Billel Omrani brenndi af algjöru dauðafæri fyrir CFR Cluj. Sigurmark Astana kom síðan á 68. mínútu leiksins. Miðvörðurinn Yevgeny Postnikov skoraði eina markið en það kom eftir að horn Rúnars Más skapaði mikinn usla í vörn Rúmenanna. Astana er á toppnum í deildinni í Kasakstan og CFR Cluj vann rúmenska meistaratitilinn á síðustu leiktíð. Það var mikilvægt fyrir Astana að halda hreinu á heimavelli en eitt mark er samt lítið forskot fyrir seinni leikinn.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Fótbolti Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Körfubolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Fleiri fréttir Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Tómas Bent og félagar með sex stiga forystu á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Evrópumeistararnir í vandræðum með botnliðið Raphinha reddaði málunum fyrir Börsunga Brynjólfur með langþráð mark Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Cecilía fagnaði stórsigri gegn erkifjendunum Vigdís Lilja lét toppsætið af hendi Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Katla í markaskónum og Ingibjörg hélt hreinu Stöngin inn hjá Ásdísi skilaði sigri Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Dýrmætur tími með börnunum áður en alvaran tekur við Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Sjá meira