Íslenskt verkefni sem Þekking, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalinn háskólasjúkrahús unnu að í sameiningu, sigraði í Media Management Award en tilkynnt var um úrslitin nú í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum.
Verkefnið snérist um að deila upplýsingum á milli rannsóknaraðila lögreglunnar og Landspítala háskólasjúkrahúss í öruggum skráarskiptum. Verkefnið, sem var leitt af Þekkingu og vinnuhópum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalanum háskólasjúkrahúsi, fékk mjög góða umsögn frá dómnefnd Media Management Award en þar sagði meðal annars.
„Verkefnið sýnir mestu nýsköpunina í framúrskarandi útfærslu á meðferð viðkvæmra gagna. Framkvæmd verkefnisins er nýstárleg á heimsmælikvarða og er dæmi um samstarfsaðferð sem ekki hefur verið notuð áður. Verkefnið undirstrikar mikilvægi og þörf á því að deila upplýsingum á milli stofnana ásamt því hvernig tækni nýtist frábærlega þeim sem starfa við að tryggja öryggi þegna og samfélags.“
Tilnefnd til fyrstu verðlauna í Media Management Award voru verkefnin Springer Medizin, National Institute of Dramatic Art (NIDA) og The Icelandic Police & The National University Hospital of Iceland.
„Það kom okkur þægilega á óvart að vera tilnefnd til þessara verðlauna og auðvitað enn betra að við skyldum enda sem sigurvegarar á móti þessu flottu verkefnum,“ segir Steingrímur Fannar Stefánsson, sérfræðingur hjá Þekkingu, um verðlaunin.
„Þetta sýnir okkur að við erum að vinna á heimsmælikvarða og það þarf oft að minna sig á að þó svo Ísland sé ekki fjölmennt, þá eigum við frábæra sérfræðingaí þekkingargeiranum. Okkar góðu samstarfsaðilar í Lögreglunni og Landspítala háskólasjúkrahúsi vilja alltaf gera betur. Það er auðvitað lykillinn að árangri,“ segir Steingrímur ennfremur.
Þekking er samstarfsaðili FotoWare sem sérhæfir sig í lausnum er varðar utanumhald stafrænna gagn eins og mynda, teikningar og fleira.
