Valur og Breiðablik krefjast þess að blaðamaður Morgunblaðsins biðjist afsökunar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2019 17:33 Úr leik Breiðabliks og Vals fyrr í þessum mánuði. vísir/daníel
Valur og Breiðablik krefjast þess að Bjarni Helgason, blaðamaður Morgunblaðsins, biðjist afsökunar á orðum sínum í Bakverði á íþróttasíðum blaðsins í dag. Félögin segjast líta orð Bjarna mjög alvarlegum augum og ásakanir hans séu úr lausu lofti gripnar og eigi ekki við nein rök að styðjast. Í umræddum Bakverði segir Bjarni að það sé í umræðunni að ungir leikmenn séu hvattir til að ganga til liðs við Val eða Breiðablik í keppnisferðum yngri landsliða kvenna. Það muni auka möguleika þeirra á að leika fyrir A-landslið Íslands. Í Bakverðinum segist Bjarni vonast til þess að ungir leikmenn verði áfram hjá sínum uppeldisfélögum í stað þess að taka gylliboðum Vals og Breiðabliks. Yfirlýsingu Vals og Breiðabliks má lesa hér fyrir neðan.Athugasemdir Breiðabliks og Vals við þankagang blaðamanns Morgunblaðsins Vegna fullyrðinga Bjarna Helgasonar blaðamanns í bakverði Morgunblaðsins, fimmtudaginn 26. september, vilja knattspyrnudeildir Breiðabliks og Vals óska svara við eftirfarandi: Hvaða dæmi um “gylliboð” hefur blaðamaður Mbl fyrir því að leikmenn hafi fengið í ferð með yngri landsliðum Íslands? Getur blaðamaður Morgunblaðsins bent á aðila tengda Breiðabliki eða Val sem hafa “markvisst reynt að selja ungum leikmönnum” slíkt í ferðum á vegum KSÍ? Knattspyrnustjórnir Breiðabliks og Vals líta þessar ásakanir blaðamanns mjög alvarlegum augum enda úr lausu lofti gripnar og eiga við engin rök að styðjast. Þess er krafist að blaðamaður biðjist afsökunar á fullyrðingum sínum. Virðingarfyllst, Stjórnir knattspyrnudeildar Breiðabliks og Vals
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Öruggur sigur City Enski boltinn Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fleiri fréttir Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Sjá meira