Valsmenn, sem áttu titil að verja í Pepsi Max-deildinni í ár, eru í 9. sæti deildarinnar er ein umferð er eftir.
Valur gerði 2-2 jafntefli við Grindavík á útivelli í gær en það var ekki fyrr en eftir jafnteflið í gær að staðfest væri að Valur spilar í úrvalsdeild á næsta ári.
Hefðu þeir ekki náð í jafntefli í gær hefðu þeir enn verið í fallhættu fyrir lokaumferðina þó að það hefði verið ólíklegt að þeir hefðu farið niður enda markatala þeirra mun betri en Grindavíkur.
Valsmenn byrjuðu tímabilið hörmulega og náðu einungis í fjögur stig í fyrstu sjö leikjunum en síðan unnu þeir þrjá leiki undir lok júnímánaðar. Þeir fikruðu sig þar með upp töfluna.
Gengi liðsins upp á síðkastið hefur hins vegar ekki verið upp á marga fiska. Síðasti sigurleikur liðsins kom gegn Fylki þann 7. ágúst og liðið hefur síðan þá einungis náð í þrjú stig af átján mögulegum.
Liðið er nú með 26 stig stig í 9. sætinu og gætu átt verstu titilvörn sögunnar í 12 liða deild. Breiðablik á nú verstu titilvörnina er liðið náði í 27 stig árið 2011 en það ár var einmitt KR líka meistari, líkt og í ár.
Valsmenn þurfa því sigur til að komast upp fyrir stigafjölda Blika árið 2011 en geri Valur jafntefli gegn HK í lokaumferðinni þá er liðið með jafn mörg stig og Breiðablik 2011.
Þrjú stig af síðustu átján mögulegum og Valur gæti átt verstu titilvörn sögunnar í 12 liða deild
Anton Ingi Leifsson skrifar

Mest lesið




Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning
Körfubolti

Þróttur skoraði sex og flaug áfram
Íslenski boltinn



Valur marði Fram í framlengingu
Íslenski boltinn

Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum
Íslenski boltinn

Fleiri fréttir
