Grótta, sem tryggði sér sæti í Pepsi Max-deild karla á dögunum, leitar nú að þjálfara eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við Breiðabliki.
Óskar Hrafn skrifaði undir fjögurra ára samning á laugardaginn við Kópavogsliðið en hann tekur við af Ágústi Gylfasyni.
Óskar hafði farið með Gróttu upp um tvær deildir á tveimur árum og leika því Seltirningar í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.
Þeir leita nú logandi ljósi að þjálfara og vefsíðan 433 hefur það samkvæmt heimildum að þeir hafi talað við Bjarna Guðjónsson, aðstoðarþjálfara Íslandsmeistara KR.
„Ég er sáttur þar sem ég er,“ sagði Bjarni í samtali við 433 en að öðru leyti vildi hann lítið tjá sig um sögusagnirnar.
Bjarni hefur reynt fyrir sér í starfi aðalþjálfara en hann þjálfaði bæði Fram og KR með misjöfnum árangri.
Síðustu ár hefur hann svo verið aðstoðarþjálfari KR en eins og flestir vita varð KR Íslandsmeistari í Pepsi Max-deild karla.
Grótta setti sig í samband við Bjarna sem segist ánægður í KR

Tengdar fréttir

Óskar: Tek þessari áskorun með útbreiddan faðminn
Óskar Hrafn Þorvaldsson skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Breiðablik.

Yfirlýsing frá Gróttu: Lögðum mikið í sölurnar til að tryggja áframhaldandi veru Óskars
Óskar Hrafn Þorvaldsson er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Breiðablik en þetta var staðfest í morgun.

Óskar Hrafn tekur við Breiðabliki
Kom Gróttu upp í Pepsi Max deild karla en söðlar nú um og tekur við Blikum.