Nokkrir fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa í dag lýst yfir vonbrigðum sínum með stjórnvöld. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að niðurstaðan væri til marks um hrópandi vanhæfni ríkisstjórnarinnar til að taka alvarlega alþjóðlegt regluverk.
Sjá nánar: „Vanhæfni ríkisstjórnar“ og „álitshnekkir fyrir Ísland“
„Hún er mikil vonbrigði en við höfum unnið verulega hart síðan allar þær athugasemdir komu í byrjun 2018 og unnið verulega mikið og þarft starf til að koma þessum reglum í lag,“ segir Áslaug Arna.
Stórnvöld vilji vitaskuld hafa hlutina í lagi.
„Athugasemdirnar sem út af standa eru örfáar og afar veigalitlar að því leyti að þær eru allar komnar í farveg eins og segir í kynningu frá FATF og við munum auðvitað einhenda okkur í það að losna af þessum lista á fundum á næsta ári,“ segir Áslaug Arna en nánar verður rætt við hana um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Tryggja þurfi að vera okkar á listanum verði eins stutt og mögulegt er
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur undir með Áslaugu Örnu og segir niðurstöðuna vera vonbrigði. Næsta skref sé að reyna að ljúka málinu.Á listanum eru lönd sem við erum ekki vön að bera okkur saman við. Það hlýtur að vera vonbrigði að sjá Ísland á þessum lista?
„Já, það eru vonbrigði að sjá Ísland á þessum lista. Snemma á árinu 2018 kom skýrsla þar sem voru gerðar alvarlegar athugasemdir við okkar framkvæmd á ýmsu sem tengist peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka; fimmtíu og ein athugasemd,“ segir Katrín.
„Ég vil segja það að núverandi ríkisstjórn hefur unnið mjög ötullega að þessu máli allt síðan skýrslan kom. Við teljum svo ver aað við séum búin að uppfylla allt nema eitt atriði á þessum langa lista en það var nóg til þess að þessi ákvörðun var tekin og það er auðvitað vonbrigði en það næsta í stöðunni er auðvitað bara að ljúka því sem á eftir að ljúka og tryggja að vera okkar á þessum lista verði eins stutt og mögulegt er.“