Segir að rasismi sé meira vandamál á Englandi en í Búlgaríu Anton Ingi Leifsson skrifar 14. október 2019 11:00 Krasimir Balakov á hliðarlínunni á dögunum. vísir/getty
Krasimir Balakov, þjálfari búlgarska landsliðsins, er ekki ánægður með ummæli Gareth Southgate og segir að rasismi sé ekki vandamál í Búlgaríu. Það verða fimm þúsund auð sæti á Vasil Levski-leikvanginum er Búlgaría mætir Englandi í undankeppni EM 2020 í kvöld. Sætin verða auð vegna framgöngu stuðningsmanna Búlgaríu gegn Kósóvó og Tékklandi. Í aðdraganda leiksins sagði Gareth Southgate að enska liðið væri búið að undirbúa hvað þeir myndu gera ef leikmenn liðsins yrðu fyrir rasisma. Krasimir Balakov segir hins vegar að Southgate eigi að líta sér nær. „Það sem ég get sagt er að mér finnst þetta ekki vera vandamál í deildinni í Búlgaríu,“ sagði Balakov á blaðamannafundi fyrir leikinn í kvöld. „Við erum með leikmenn frá mörgum mismunandi þjóðarernum og marga húðliti. Ég held að við séum ekki með eins stórt vandamál og er til dæmis á Englandi.“England has bigger racism problem than Bulgaria declares boss Krasimir Balakov @andydunnmirrorhttps://t.co/mmvJeowa8epic.twitter.com/IayaCtLM2Q — Mirror Football (@MirrorFootball) October 13, 2019 „Í úrvalsdeildinni í Búlgaríu höfum við ekki verið í vandræðum á meðan á Englandi hefur verið allar tegundir af rasisma.“ „Þetta hefur ekki gerst nýlega á landsleik og ég vona að leikurinn verði bara fótbolta skemmtun,“ sagði hann að lokum. Leikur Búlgaríu og Englands verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld.
EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir Southgate undirbýr leikmennina í að ganga af velli Gareth Southgate er búinn að undirbúa leikmenn sína fyrir það að ganga af velli ef þeir verða fyrir kynþáttaníði í komandi leikjum í undankeppni EM 2020. 9. október 2019 07:00 Mest lesið Enginn ákærður vegna andláts Adam Johnson Sport Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 105-104 | Lygilegar lokamínútur Körfubolti Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Íslenski boltinn „Þetta er úrslitakeppnin og hlutir gerast“ Körfubolti Valur í kjörstöðu gegn ÍR Handbolti Sigtryggur Arnar eignaðist strák rétt fyrir stórleik kvöldsins Körfubolti Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni Íslenski boltinn Mark snemma leiks gerði gæfumuninn Fótbolti Upgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Íslenski boltinn Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur Handbolti Fleiri fréttir Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Sjá meira
Southgate undirbýr leikmennina í að ganga af velli Gareth Southgate er búinn að undirbúa leikmenn sína fyrir það að ganga af velli ef þeir verða fyrir kynþáttaníði í komandi leikjum í undankeppni EM 2020. 9. október 2019 07:00