Uppgötvaði Storytel og slær nú um sig í matarboðum Storytel kynnir 23. október 2019 08:45 „Allt í einu er ég orðinn gæinn í matarboðinu sem talar um bókmenntir. Ég sem hafði aldrei lesið neitt.“ Hafsteinn Már Sigurðsson hlustar á hljóðbækur við vinnuna. Vilhelm „
Þetta var algjör opinberun. Allt í einu er ég orðinn gæinn í matarboðinu sem talar um bókmenntir. Ég sem hafði aldrei lesið neitt. Fólk sem hefur þekkt mig lengi fór bara að hlæja og spurði hvort ég væri að grínast!“ segir Hafsteinn Már Sigurðsson, múrari en hann hlustar á hverja hljóðbókina eftir aðra í vinnunni með hljóðbókaforritinu Storytel. Hann hefur hlustað á fleiri tugi bóka og segir Storytel hafa breytt lífi hans. „Ég fæ ekki nóg af því að hlusta. Ég er með smá athyglisbrest og komst aldrei lengra en fimm blaðsíður í bók, þá þurfti ég að byrja aftur. En ég held athyglinni þegar ég hlusta, sérstaklega þegar góður lesari fer með textann. Ég næ oft hálfri bók á dag og stundum heilli og jafnvel meira ef ég get hlustað stanslaust frá morgni til kvölds,“ segir Hafsteinn. Hann hlusti á allt, glæpasögur, fræðibækur og heimsbókmenntir, allt í bland. Oft er vinnan þess eðlis að Hafsteini gefst næði til að ljúka heilli bók og jafnvel komast langt með aðra.Vilhelm Sorglegustu kaflarnir teknir heima „Stundum verð ég að stoppa og klára bókina seinna ef hún er mjög sorgleg. Ég þurfti til dæmis að ýta á pásu í bókunum Ég er Malala og Maður sem heitir Ove og taka restina heima. Ég gat ekki farið að skæla fyrir framan vinnufélagana, allt grjótharðir iðnaðarmenn,“ segir Hafsteinn hlæjandi. Vinnufélagarnir spyrji reyndar oft hvað hann sé að hlusta á. „Ég predika kosti Storytel hvenær sem ég get og bendi mönnum á bækur. Þetta smitar út frá sér. Menn fara að tala um hvað þeir eru að lesa eða hlusta á og koma með ábendingar um eitthvað spennandi. Ég er að hlusta á ævisögu Bruce Springsteen núna, Born to Run og svo er ég að bíða eftir nýrri bók eftir Sólveigu Pálsdóttur en mér fannst bókin hennar Refurinn alveg geggjuð. Ég er búinn með Góða dátann Svejk, Hitchhiker's Guide to the Galaxy og svo margt fleira sem mig hefur lengi þyrst í að lesa. Ég gæti ekki verið ánægðari með Storytel, það hefur algjörlega breytt lífi mínu,“ Segir Hafsteinn. Storytel ætlar að gefa heppnum hljóðbókarhlustanda áskrift í eitt ár. Til að komast í pottinn þarf að fara inn á Facebook-síðu Storytel og segja við hvaða aðstæður er best að hlusta. Uppfært 29.október: Leiknum er lokið.
Bókmenntir Mest lesið Tvö ár í stofufangelsi Lífið Hættir við keppni í Ungfrú alheimi Lífið Fékk gula spjaldið frá lækninum og reimaði á sig hlaupaskóna Lífið Fréttatía vikunnar: Grand Theft Auto, Neyðarkallinn og fjársvik Lífið Valdi fallegasta karlmanninn Lífið „Innsýn í djammlífið og hvernig Gugga í gúmmíbát djammar“ Lífið Bað fjóra menn um lífssýni en fékk föðurinn óvænt í fangið Lífið Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Lífið samstarf Kynþokkafyllstu karlmenn landsins Lífið Elskar að bera klúta Lífið Fleiri fréttir Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Fegurðin og fjölbreytnin í krulluðu hári Nanna Rögnvaldar og Hallgrímur Helga lesa í kvöld Sól, borg, skíði og flug á einum stað Alvöru kósýkvöld með frábærum afsláttum, gleði og góðri stemningu Góð tannheilsa er hluti af hamingju og heilsu Kvefið gengur hraðar yfir með ColdZyme® Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira