Ísland eina liðið sem hefur unnið Tyrki síðan að þjálfarinn tók við Óskar Ófeigur Jónsson í Antalya skrifar 12. nóvember 2019 11:30 Senol Günes á blaðamannfundi. Getty/Orhan Cicek
Tyrkir eru að gera frábæra hluti í undankeppni EM og það er kannski ekkert skrýtið ef við skoðum það hver er að þjálfa liðið en það er sannkölluð lifandi goðsögn. Tyrkir taka á móti Íslendingum í Istanbul á fimmtudagskvöldið þar sem íslensku strákarnir verða að vinna ætli þeir sér upp úr riðlinum. Senol Günes er merkilegur þjálfari í knattspyrnusögu Tyrkja því hann er sá landsliðsþjálfari sem bjó til besta landslið Tyrkja hingað til. Senol Günes tók við tyrkneska landsliðinu í ágústmánuði árið 2000, þá 48 ára gamall, og undir hans stjórn komust Tyrkir á HM í Japan og Suður-Kóreu. Þar sló liðið í gegn, fór alla leið í undanúrslit og vann brons eftir 3-2 sigur á Suður-Kóreu í leiknum um þriðja sætið. Günes hætti með landsliðið þegar Tyrkjum mistókst að komast á EM 2004 en tók aftur við liðinu eftir ófarir þess í Þjóðadeildinni á síðasta ári. Það er óhætt að segja að tyrkneska landsliðið hafi tekið stakkaskiptum eftir að Senol Günes settist aftur í þjálfarastólinn. Liðið hefur unnið átta af fyrstu tíu leikjunum og tekið fjögur stig út úr tveimur leikjum á móti heimsmeisturum Frakka. Eina tapið kom aftur á móti Íslandi á Laugardalsvellinum í júní. Ísland er nefnilega eina liðið sem hefur unnið Tyrki síðan að Senol Günes tók við.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Formúla 1 Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Sport Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Fleiri fréttir Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Enginn varið fleiri víti en Mamardashvili Daníel Tristan skoraði sigurmark Malmö Albert skoraði en Fiorentina enn án sigurs og á botninum Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Fyrsta jafntefli Real Madrid Fanney sænskur meistari í fyrstu tilraun Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Hvetur Napólí til að sækja óánægðan Mainoo Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Sjá meira