Gunnar hættir með Hauka eftir tímabilið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. desember 2019 09:14 Gunnar er á sínu fimmta tímabili með Hauka. vísir/bára
Gunnar Magnússon hættir sem þjálfari karlaliðs Hauka í handbolta eftir tímabilið. Gunnar greindi frá þessu í hlaðvarpsþættinum Haukahornið í gær. „Það hefur legið fyrir frá byrjun tímabilsins að þetta yrði mitt síðasta tímabil með meistaraflokk karla hjá Haukunum. Það er þannig að ég er að klára mitt fimmta ár núna og ég setti mér það markmið þegar ég kom í klúbbinn að vera ekki hérna of lengi og kveðja með reisn og geta þá komið aftur,“ sagði Gunnar. Hann segist hafa ákveðið í sumar að þetta tímabil yrði hans síðasta með Hauka. Gunnar tók við Haukum af Patreki Jóhannessyni 2015. Undir hans stjórn urðu Haukar Íslandsmeistarar 2016 og deildarmeistarar 2016 og 2019. Á síðasta tímabili komust Haukar í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn en töpuðu fyrir Selfossi, 3-1. Áður en Gunnar kom til Hauka var hann þjálfari ÍBV og gerði Eyjamenn að Íslands- og bikarmeisturum. Auk þess að þjálfa Hauka er Gunnar aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins og yfirþjálfari yngri landsliða HSÍ. Haukar eru í efsta sæti Olís-deildar karla eftir 14 umferðir. Gunnar var valinn besti þjálfari fyrri hluta mótsins af Seinni bylgjunni.
Olís-deild karla Mest lesið „Það er æðislegt að kveðja húsið svona“ Körfubolti „Við erum ekki á góðum stað“ Sport Uppgjörið: ÍA - Álftanes 76-74 | ÍA kvaddi Vesturgötuna með stæl Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - ÍR 91-93 | ÍR skellti meisturunum Körfubolti Leeds afgreiddi West Ham Enski boltinn Brassi tekur við af Billups Körfubolti Skórnir gætu farið í hilluna hjá Hill Sport Uppgjörið: N-Írland - Ísland 0-2 | Varnarjaxlarnir tryggðu sigur Fótbolti Belgarnir hennar Betu fengu skell Fótbolti Stjórnarmaður KKÍ auglýsir ólöglega veðmálastarfsemi Körfubolti Fleiri fréttir Afturelding komst upp að hlið Hauka Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Uppgjörið FH - Haukar 27-26 | Birgir Már tryggði FH sigur eftir spennutrylli Bernard fór mikinn en Valsmenn sluppu með sigurinn Fyrsti sigur Þórsara síðan í byrjun september Ómar Ingi með fullkomnan leik í Meistaradeildinni Guðjón Valur og lærisveinar hársbreidd frá því að vinna Kiel Hlakka til að sjá Viktor Gísla aftur og senda honum skilaboð Neyddar í sömu stöðu og Ísland og límdu melónur á skóna Hatar hvítu stuttbuxurnar Fjölga stórmótum landsliða í handboltanum Allt jafnt í bikarslag íslensku stelpnanna Orri fagnaði í Íslendingaslag í Meistaradeildinni Hjartavandamál halda Reyni frá keppni Stórar breytingar á Evrópukeppnum í handbolta Framarar töpuðu aftur á heimavelli í Evrópudeildinni Magdeburg komst örugglega áfram í sextán liða úrslitin Íslensku strákarnir áberandi í Evrópudeildinni „Stærri og sterkari en liðin sem við þekkjum hérna heima“ Viktor til liðs við frænda sinn og bróður Uppgjörið: Portúgal - Ísland 26-25 | Annar eltingaleikur íslenska liðsins endar með öðru tapi Kom að fjórtán mörkum í stórsigri á Leipzig Unnu seinni leikinn en eru úr leik „Langar að segja að ég hafi aldrei verið hrædd en var það allan tímann“ Viggó markahæstur í góðum sigri Erlangen Eins marks sigur Eyjamanna í Mosfellsbænum Donni með skotsýningu Átta marka tap FH í Tyrklandi Fækkar í starfsteyminu vegna fjárhagskragga Sjá meira