Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta hefur tilkynnt 19 manna æfingahóp fyrir EM 2020.
Björgvin Páll Gústavsson, sem hefur ekki leikið síðustu landsleiki, er einn þriggja markvarða í hópnum. Hann hefur ekki misst af stórmóti síðan EM 2008.
Teitur Örn Einarsson og Ólafur Gústafsson, sem léku á HM 2019, detta út úr stóra 28 manna hópnum sem var tilkynntur í byrjun desember.
Auk Teits og Ólafs komust Aron Rafn Eðvarðsson, Oddur Grétarsson, Óðinn Þór Ríkharðsson, Elvar Ásgeirsson, Kristján Örn Kristjánsson, Elliði Snær Viðarsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson ekki í æfingahópinn. Sá síðastnefndi er meiddur.
Þrír leikmenn sem voru í silfurliðinu á Ólympíuleikunum 2008 og bronsliðinu á EM 2010 eru í hópnum; Björgvin Páll, Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson. Sá síðastnefndi er væntanlega á leið á sitt fyrsta stórmót síðan EM 2016.
Sextán leikmenn mega vera á skýrslu í leik á EM. Búast má við því að Guðmundur taki 17 leikmenn með út.
Ísland er í riðli með Danmörku, Rússlandi og Ungverjalandi á EM. Riðilinn verður leikinn í Malmö í Svíþjóð. Fyrsti leikur Íslendinga er gegn heimsmeisturum Dana 11. janúar.
Æfingar íslenska liðsins hefjast 22. desember. Liðið hér heima milli jóla og nýárs og allt þar til það heldur til Þýskalands 3. janúar. Þann fjórða mætast Íslendingar og Þjóðverjar í vináttulandsleik í Mannheim.
Eftir leikinn gegn Þýskalandi koma Íslendingar heim og æfa þar til þeir fara til Malmö 9. janúar.
Markmenn:
Ágúst Elí Björgvinsson IK Sävehof 31/0
Björgvin Páll Gústavsson Skjern 221/13
Viktor Gísli Hallgrímsson GOG 9/0
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson Lemgo 63/141
Guðjón Valur Sigurðsson PSG 356/1853
Vinstri skytta:
Aron Pálmarsson Barcelona 141/553
Ólafur Andrés Guðmundsson Kristianstad 115/215
Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson Skjern 26/80
Haukur Þrastarson Selfoss 12/15
Janus Daði Smárason Aalborg 37/41
Hægri skytta:
Alexander Petersson Rhein-Neckar Lowen 173/694
Viggó Kristjánsson Wetzlar 2/3
Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson Bergischer 105/311
Sigvaldi Björn Guðjónsson Elverum 20/37
Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson GOG 45/65
Kári Kristján Kristjánsson ÍBV 137/162
Sveinn Jóhannsson SönderjyskE 7/14
Ýmir Örn Gíslason Valur 33/14
Varnarmenn:
Daníel Þór Ingason Ribe Esbjerg 30/9
