Bournemouth íhugar að fara í mál við fyrirtækið sem sér um marklínutæknina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2020 13:30 Atvikið örlagaríka í leik Aston Villa og Sheffield United. getty/Matthew Ashton
Bournemouth íhugar að höfða skaðabótamál á hendur Hawk-Eye, fyrirtækisins sem sér um marklínutæknina í ensku úrvalsdeildinni. Marklínutæknin klikkaði illilega í leik Aston Villa og Sheffield United þann 17. júní. Síðarnefnda liðið skoraði þá mark sem var ekki dæmt gilt þótt boltinn væri augljóslega kominn inn fyrir línuna. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Villa hélt sér uppi en Bournemouth féll úr ensku úrvalsdeildinni. Aðeins einu stigi munaði á liðunum. Ef markið á Villa Park hefði verið dæmt gilt hefði Bournemouth haldið sér uppi en Villa fallið. Hawk-Eye baðst afsökunar á mistökunum sem reyndust Bournemouth svo dýr. Forráðamenn félagsins velta því nú fyrir sér hvort þeir eigi að höfða skaðabótamál á hendur Hawk-Eye. Ljóst er að fallið hefur mikil áhrif á fjárhagsstöðu Bournemouth. Á síðasta tímabili kom nánast öll innkoma félagsins frá ensku úrvalsdeildinni, eða 116 af 131 milljón punda. Eftir tímabilið 2006-07 fékk Sheffield United um 20 milljónir punda í skaðabætur vegna félagaskipta Carlos Tevez til West Ham. Hamrarnir héldu sér uppi á kostnað Sheffield-liðsins, ekki síst vegna framlags Tevez. Bournemouth vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni 2015. Liðið lék þar í fimm tímabil. Ekki liggur fyrir hvort Eddie Howe verður áfram knattspyrnustjóri Bournemouth.
Enski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Sjá meira