Stuðmenn fögnuðu hálfrar aldar afmæli Andri Eysteinsson skrifar 16. febrúar 2020 19:04 Frá tónleikum Stuðmanna. Pétur Fjeldsted Einarsson
Hljómsveitin ástsæla Stuðmenn hélt upp á hálfrar aldar afmæli sveitarinnar með tvennum afmælistónleikum í Eldborgarsal Hörpu í gær. Færri komust að en vildu á tónleikana sem heppnuðust með eindæmum vel. Áhorfendaskarinn þekkti vel til texta Stuðmanna og tóku undir með hástöfum þegar við bar. Stuðmenn voru stofnaðir árið 1970 og voru upphaflegir meðlimir þeir Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson, Gylfi Kristinsson og Ragnar Danielsen. Fyrsta plata sveitarinnar var Sumar á Sýrlandi sem gefin var út árið 1975 en Stuðmenn hafa verið duglegir að gefa út tónlist á árunum 50. Þá birtust þeir einnig í kvikmyndum á borð við Með allt á hreinu og Mávahlátur. Mikið stuð var í Eldborg í gærkvöldi þegar Stuðmenn stigu á svið líkt og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. Þar sést sveitin flytja lag sitt „Ofboðslega frægur“. Ákveðið hefur verið að bæta við auka afmælistónleikum í Hörpu og fara þeir fram 22. apríl næstkomandi.
Tímamót Tónlist Mest lesið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira