Milljarður rís, bansbylting UN Women á Íslandi verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu á mánudaginn næsta, milli klukkan 12:15 og 13. Viðburðurinn átti upphaflega að fara fram í dag en ákveðið var að fresta honum vegna veðurs.
Í tilkynningu frá UN Women kemur fram að í ár verði kastljósinu beint að stafrænu ofbeldi sem sé sívaxandi vandamál.
Sólborg Guðbrandsdóttir, aktívisti með Instagram síðuna Fávitar er heiðursgestur og heldur hvatningarræðu, en auk hennar koma fram tónlistarkonurnar Sigríður Thorlacius, Sigga Beinteins og Elísabet Ormslev þar sem þær munu syngja ábreiður af „bestu danslögum okkar tíma“, líkt og segir í tilkynningunni, en DjMargeir er tónlistarstjóri viðburðarins.
„Á Milljarði Rís stígur landsbyggðin einnig baráttudans gegn ofbeldi með gleði að vopni. Dansað verður í Frystiklefanum Rifi, Menntaskólanum Egilsstöðum, Fosshóteli Húsavík, Ungmennahúsinu Reykjanesbæ, Félagsheimilinu á Hólmavík, Herðubreið á Seyðisfirði, íþróttahúsinu við Vallaskóla Selfossi, í Kvikunni Grindavík og íþróttamiðstöðinni Djúpavogi,“ segir í tilkynningunni.