Hræringar í Árbænum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. febrúar 2020 20:30 Ari í leik með Fylki gegn FH. Vísir
Það er mikið um að vera hjá knattspyrnudeild Fylkis þessa dagana en Ari Leifsson er á leið í atvinnumennsku og þá staðfesti félagið komu Djair Parfitt-William í dag em sá kemur frá Slóveníu eftir að hafa verið alinn upp á Englandi en er með vegabréf frá Bermúda. Þetta kom fram á mbl.is fyrr í dag. Ari Leifsson hefur verið fastamaður í vörn Fylkis undanfarin tvö sumur en hann er uppalinn Árbæingur. Þessi ungi og efnilegi leikmaður heldur nú í víking til Noregs en Árbæingar hafa samþykkt tilboð norska úrvalsdeildarfélagsins Strømsgodset. Ef Ari samþykkir samning félagsins ætti hann að verða leikmaður þess á næstu dögum og þar með ljóst að hann mun ekki leika með Fylki í Pepsi Max deildinni næsta sumar. Alls hefur Ari, sem er fæddur árið 1998, leikið 46 leiki í efstu deild fyrir Fylki ásamt því að hafa leikið 14 leiki fyrir U21 landslið Íslands og skorað í þeim eitt mark. Strømsgodset endaði í 11. sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð með 32 stig. Þá staðfesti mbl.is einnig komu Djair Parfitt-William til Fylkis en hann fær leikheimild á morgun og missir því af leik Fylkis og Víkings Reykjavíkur sem er í þann mund að ljúka. Parfitt-Williams lék síðast með Rudar Velenje í Slóveníu en þessi 23 ára gamli sóknarmaður var í röðum West Ham United á sínum yngri árum.
Norski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Fleiri fréttir Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Sjá meira