Formaður hkd. Stjörnunnar: Nú er boltinn hjá bænum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. febrúar 2020 13:30 Úr leik hjá Stjörnunni í Mýrinni. Liðið vill komast þaðan og yfir í Ásgarð. vísir/bára
Það voru spilaðir úrvalsdeildarleikir í handbolta í Ásgarði um síðustu helgi. Þeir fyrstu í um fimmtán ár fyrir utan einn leik árið 2018. Ánægja er hjá handknattleiksdeild Stjörnunnar hvernig til tókst. „Þetta gekk vonum framar hjá okkur. Þetta var ákveðin tilraun til að sjá hvort það væri enn hægt að spila handbolta þarna miðað við aðstæður í dag. Það sýndi sig að þetta er hægt og nú er boltinn hjá bænum,“ segir Pétur Bjarnason, formaður handknattleiksdeildar Stjörnunnar, hæstánægður með tilraunina sem og með sigrana tvo í leikjunum. „Fyrirliðar liðanna okkar hafa sent bæjarstjórninni bréf og lýst yfir ánægju sína með að spila í þessu húsi. Þetta gekk vel og var mjög jákvætt.“ Ásgarði hefur verið breytt í körfuboltahús. Klukkan í húsinu er fyrir körfubolta og svo er búið að kaupa inn stúkur fyrir körfuboltann og mála völlinn fyrir körfubolta. Það þarf því að breyta ýmsu ef handboltinn ætlar að spila þarna næsta vetur en það er hægt segir formaðurinn. „Við erum búnir að mæla þetta og við þurfum að hliðra vellinum um tvo metra. Þá getum við dregið stóru stúkuna alveg út og náum einni röð hinum megin,“ segir Pétur en handknattleiksdeildin hefur ekki farið fram á að spila aftur í Ásgarði í vetur. „Við trúum því að hægt sé að finna lausn í sátt og samlyndi í þessum málum öllum til heilla. Nú bíðum við eftur svörum.“
Garðabær Olís-deild karla Olís-deild kvenna Tengdar fréttir Vilja spila heimaleiki í handboltanum í Ásgarði | Lítil ánægja hjá körfunni Handknattleiksdeild Stjörnunnar gerir tilraun með að leika tvo leiki í Ásgarði á laugardaginn. 12. febrúar 2020 12:00 Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Sjá meira
Vilja spila heimaleiki í handboltanum í Ásgarði | Lítil ánægja hjá körfunni Handknattleiksdeild Stjörnunnar gerir tilraun með að leika tvo leiki í Ásgarði á laugardaginn. 12. febrúar 2020 12:00