Viðskipti innlent

Undir­rituðu vilja­yfir­lýsingu um nýjan skipa­þjónustu­klasa

Atli Ísleifsson skrifar
Nýja skipakvíinn (þessi til vinstri) teiknuð inn á ljósmynd.
Nýja skipakvíinn (þessi til vinstri) teiknuð inn á ljósmynd. Aðsend

Skipasmíðastöð Njarðvíkur, Reykjanesbær og Reykjaneshöfn undirrituðu í morgun viljayfirlýsingu um uppbygginu hafnar- og upptökumannvirkja í Njarðvík. Er ætlunin að mynda með því sterkan grunn að uppbyggingu skipaþjónustuklasa og standa vonir til að uppbyggingin skapi .

Í tilkynningu segir að verkefnið snúið að bættri aðstöðu í Njarðvíkurhöfn þannig að unnt verði að skapa tækifæri margra fyrirtækja til byggingar skipaþjónustuklasa sem geti umbylt aðstöðu til þjónustu við íslenskan og erlendan skipaflota og skapað störf. Skipti þar mesti að reist verði yfirbyggð þurrkví sem geti sinnt stórum skipum án veðuráhrifa allt árið.

„Aðstaða við Njarðvíkurhöfn verður þannig fyrir nánast allar gerðir skipa fiskveiðiflotans. Forsenda þessa er að Reykjaneshöfn geri nýjan skjólgarð í Njarðvíkurhöfn sem mun umbreyta allri hafnaraðstöðu þar og skapa möguleika fyrir byggingu kvíarinnar.

Kjartan Már Ragnarsson, Þráinn Jónsson og síðan Halldór Karl Hermannsson.Aðsend

Skipasmíðastöð Njarðvíkur undirbýr nú að fjárfesta í yfirbyggðri skipakví sem myndi umbylta skipaþjónustu á Íslandi. Kvíin væri rúmlega 100 metrar á lengd og yfir 20 metra breið. Verkefnið er m.a. að ná auknum hluta íslenskra skipa sem nú sigla í slipp til annarra landa sem og að ná skipum af norðurslóðum til landsins. Með umræddu húsi stórbætast möguleikar á hvers kyns viðhaldsverkefnum sem annars eru keypt erlendis. Svo stór og yfirbyggð kví ásamt landi og aðstöðu í og við Njarðvíkurhöfn skapar skilyrði fyrir skipaþjónustuklasa með mörg hundruð störfum,“ segir í tilkynningunni.

Áætlaður framkvæmdatími verkefnisins er sagður þrjú ár frá því að fjármögnun þess liggur fyrir. Er klasinn sagður tiltölulega fljótt geta skapað á annað hundrað störf og samfélaginu umtalsverðar tekjur til framtíðar.

„Bein vinna í hinni nýju kví kallar á 70-80 heilsársstörf auk óbeinna starfa. Varlega áætlað er gert ráð fyrir að verkefni sem tengjast kvínni fyrst um sinn skapi þannig um 120 störf. Ekki er óraunhæft að ætla að á fáum árum gæti orðið til í Njarðvík þekkingarklasi í viðhaldi og þjónustu við skip sem teldi um 250 - 350 bein og óbein störf.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×