694 fólksbílar seldust í febrúar hér á landi. Um er að ræða 13,4% samdrátt miðað við sölu í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram á vef Bílgreinasambandsins. Ef salan er skoðuð með tilliti til kaupendahópa má sjá að sala til einstaklinga hefur aukist um 1% á milli ára.
Samdráttur í bílasölu það sem af er ári hefur verið 14,9%. Árið 2019 seldust 1647 nýir bílar í janúar og febrúar, í ár seldust 1402 nýir bílar á sama tímabili. Samdráttinn má því allra helst reka til minni sölu til fyrirtækja, sérstaklega bílaleiga. Almenn fyrirtæki (önnur en bílaleigur) hafa dregið kaup á nýjum bílum saman um 1,8%. Bílaleigur hafa hins vegar dregið seglin saman um 41,1%.

Vistvænir bílar voru yfir helmingur seldra bíla í janúar og febrúar, samtals um 51,1% af sölu allra nýrra fólksbíla. Hreinir rafbílar eru þar stærstir með 19,6% og tengiltvinnbílar voru 17,2% seldra nýrra bíla. tvinnbílar voru 13,3% og metanbílar 0,9%.
Ætla má að aukið úrval hreinna rafbíla standi einna helst fyrir þessum viðsnúningi. Framboðið mun halda áfram að aukast hratt næstu misserin.