Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, HaFiÐ mætir Dusty Bjarni Bjarnason skrifar 22. september 2020 19:02
Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Sjöunda umferð deildarinnar verður leikinn í kvöld og eru spennandi viðureignir í vændum. Í fyrsta leik kvöldsins mætast GOAT og Þór. Bæði liðin hafa sýnt góða spilamennsku á köflum og eiga mikið inni. Það verður spennandi að sjá hvernig þau fóta sig í kvöld, GOAT er á heimavelli og því með sterka stöðu í leik sem getur brugðið til beggja. Í millileik kvöldsins mætast Dusty og HaFiÐ. Það þarf varla að kynna til leiks Dusty sem tróna á toppi deildarinnar og lögðu KR í hörkuspennandi viðureign í síðustu umferð. Þrátt fyrir sterkt lið Dusty er þetta ekki gefin viðureign fyrir þá. Leikmenn þessara tveggja liða hafa att kappi undanfarin ár þar sem að báðir hópar hafa borið sigur úr bítum. Lokaleikur kvöldsins er Fylkir á móti XY. Sterkt lið Fylkis hefur átt hvern hörku leikinn á fætur öðrum og leikmenn XY hafa slípað sig saman sem lið með hverjum leiknum í deildinni. Heimavallar forskot Fylkis þar sem þeir fá að velja kortið mun koma að gagni í þessari viðureign. Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi. Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan. 19:30 GOAT - Þór 20:30 Dusty - HaFiÐ 21:30 Fylkir - XY Útsending er hefst kl 19:15 og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.
Þór Akureyri Dusty Fylkir Vodafone-deildin Mest lesið Uppgjör: Tindastóll-Stjarnan 93-90 | Stólarnir með ótrúlega endurkomu í blálokin Körfubolti Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Handbolti Frederik Schram fundinn Íslenski boltinn „Helmingurinn af liðinu var veikur“ Körfubolti Rio Ferdinand lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Tilbúinn að gefa nýrun sín en ekki að leigja bílaleigubíl Enski boltinn Manchester United spilar til úrslita í Evrópudeildinni Fótbolti Alfreð reiður út í leikmenn sína Handbolti Harmleikur á Bretlandi: „Hann var frábær faðir“ Sport Lést á leiðinni á æfingu Sport