Chelsea vann sannfærandi 4-0 sigur á Crystal Palace á Stamford Bridge í dag.
Ben Chilwell skoraði fyrsta markið snemma í seinni hálfleik eftir markalausan fyrri hálfleik, hans fyrsta mark fyrir Chelsea.
Kourt Zouma bætti við öðru marki Chelsea á 66. mínútu. Jorginho skoraði síðan tvívegis úr vítaspyrnu með fjögurra mínútna millibili, á 78. mínútu og 82. mínútu.
Chelsea fer með sigrinum upp í 4. sæti, að minnsta kosti í bili, á meðan Crystal Palace er í áttunda sæti sem stendur.