Lewandowski getur slegið Ronaldo við í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 21. október 2020 09:31 Markavélin Robert Lewandowski freistar þess að skora gegn Atlético Madrid í kvöld. Getty/Boris Streubel
Robert Lewandowski á möguleika á að slá eitt af metum Cristianos Ronaldo í kvöld þegar Bayern München tekur á móti Atlético Madrid. Lewandowski er reyndar búinn að jafna met Portúgalans með því að skora í níu leikjum í röð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Það gerði Ronaldo á árunum 2012 til 2014. Lewandowski getur svo skoraði í tíunda leiknum í röð en þarf þá að finna leiðina að marki Atlético sem er oft vandrötuð. Bayern varð á síðustu leiktíð fyrsta liðið í sögunni til að vinna alla sína leiki í Meistaradeildinni. Vegna kórónuveirufaraldursins voru leikirnir þó ekki nema 11, en það er samt lengsta runa sigurleikja hjá liði í Meistaradeildinni. Lewandowski varð markakóngur Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð með 15 mörk. Atlético hefur aðeins unnið tvo af síðustu tíu útileikjum sínum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Luis Suárez gæti bætt úr því en hann hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm byrjunarliðsleikjum sínum í keppninni. Leikur Bayern og Atlético er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 19 í kvöld. Leikir Real Madrid og Shaktar Donetsk, Ajax og Liverpool, og Manchester City og Porto eru einnig í beinni útsendingu. Á Stöð 2 Sport 2 er svo Meistaradeildarmessan þar sem mörkin í öllum leikjum kvöldsins eru sýnd þegar þau eru skoruð.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn „Haukur og Einar ekki komnir til að vera í stúkunni“ Handbolti Segir Ísland verða að vinna Slóveníu Handbolti Rúmin á hótelinu valda bakvandamálum: „Nokkrir helvíti stífir“ Handbolti Pavel stakk upp á áhugaverðum skiptum Körfubolti Neymar á heimleið? Fótbolti Kominn úr banni en gleðin enn týnd Körfubolti Orðinn þreyttur á lélegum liðum á HM: „Þetta er algjört bíó“ Handbolti „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Fótbolti Fleiri fréttir Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Hákon skoraði í endurkomusigri Lille Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Endrick tileinkaði Rüdiger mörkin sin: Hann hrósar mér aldrei Denis Law látinn Sjá meira