Bæði Íslendingaliðin lönduðu sigrum í Evrópudeildinni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. október 2020 21:20 Viktor Gísli Hallgrímsson og Teitur Örn Einarsson komu báðir við sögu í sigrum liða sinna í kvöld. EPA/Getty
Kristianstad og GOG unnu leiki sína í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Sænska liðið Kristianstad vann öruggan níu marka sigur á Dinamo Búkarest Rúmeníu. Þá vann danska liðið GOG eins marks sigur á Pelister frá Norður-Makedóníu fyrr í kvöld. Í B-riðli mættust Kristianstad og Búkarest í Svíþjóð. Sigur Kristianstad var aldrei í hættu en liðið var fjórum mörkum yfir í hálfleik, staðan þá 16-12. Þeir bættu svo við í síðari hálfleik og unnu leikinn á endanum níu marka sigur, lokatölur 31-22. Teitur Örn Einarsson skoraði þrjú mörk í liði Kristianstad í kvöld. Ólafur Andrés Guðmundsson kom ekki við sögu í sigri kvöldsins. Kristianstad hefur nú unnið einn leik og tapað einum og er í 3. sæti riðilsins, af sex liðum. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í danska handknattleiksliðinu GOG fögnuðu sínum fyrsta sigri í D-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld. Fengu þeir Pelister frá Norður-Makedóníu í heimsókn. Vann GOG einkar nauman eins marks sigur, lokatölur 30-29. Viktor Gísli varði alls fimm skot í marki GOG í kvöld eða alls 26 prósent skota gestanna, sem rötuðu á markið þar að segja. Þá lagði Viktor upp eitt mark og spilaði hann því sinn þátt í sigri kvöldsins. Danska liðið er nú með tvö stig í 2. sæti D-riðils. Eru það jafn mörg stig og svissneska liðið Kadetten er með en Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari liðsins.
Handbolti Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Sjá meira