Í tilefni af degi íslenskrar tungu, sem haldinn er í dag, verður hátíðardagskrá streymt frá Hörpu. Dagskráin hefst klukkan 16 og verður hægt að fylgjast með í spilaranum að neðan.
Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands haustið 1995, að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu.
Dagskrá:
- Tónlistaratriði – Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari.
- Ljóðalestur – Arnmundur Ernst Backman les ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.
- Afhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar og sérstakrar viðurkenningar á degi íslenskrar tungu – Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
- Tónlistaratriði – Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari.
Vegna fjöldatakmarkana verður viðburðurinn ekki opinn almenningi í Hörpu.