Þetta kemur fram í frétt Namibian Sun í morgun þar sem segir að Imalwa muni ákæra fyrirtækið fyrir hlut sinn í Fishrot-málinu svokallaða, líkt og það er orðað í frétt namibíska fjölmiðilsins. Fishrot-málið hefur í daglegu tali hér á landi gengið undir nafninu Samherjaskjölin, eftir að Kveikur fjallaði um málið í nóvember á síðasta ári.
Enginn starfsmaður Samherja er nafngreindur í frétt Namibian Sun, einungis er talað um fyrirtækið Samherja. Í frétt Namibian Sun er vitnað í yfirlýsingu frá skrifstofu ríkissaksóknarans þar sem því er haldið fram að eina leiðin fyrir Samherja til að öðlast kvóta hafi verið að fara í kringum þær hefðbundnu leiðir sem um það gildi samkvæmt lögum í Namibíu.
Í frétt Namibian Sun er einnig vísað í sömu tölur og sagt var frá í frétt RÚV í vikunni, það er að meintur ólöglegur ávinningur Samherja af milliríkjasamningi namibískra og angólskra yfirvalda, sé metinn á 547 milljónir namibíudollara, um 4,7 milljarða króna.
Þessu hefur Samherji hafnað alfarið í yfirlýsingu á vef félagsins í gær sem birt var af tilefni fréttaflutnings RÚV um hinn meinta ávinning. Þar segir að ekki hafi verið tekið fram að sú fjárhæð sem tilgreind var feli í sér áætlaðar heildartekjur áður en skattar og gjöld hafi verið dregin frá. Ekkert hafi verið minnst á skatta, gjöld og annan rekstarkostnað. Þá bendir félagið á að útgerðin í Namibíu hefði þegar uppi var staðið, verið rekin með tapi á tímabilinu 2012-2018.