Aston Villa og Burnley gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í fyrri leik dagsins í enska boltanum.
Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley vegna meiðsla sem eru enn að plaga hann.
Vörn beggja liða hélt vel en heimamenn í Villa voru nær sigrinum. Jack Grealish komst meðal annars nálægt því að skora á 89. mínútu en inn vildi boltinn ekki. Lokatölur 0-0.
Eftir jafnteflið er Villa í ellefta sætinu með nítján stig en Burnley er í sautjánda sætinu með tíu, stigi fyrir ofan fallsæti.
Síðari leikur kvöldsins er á milli United liðanna, Manchester og Sheffield.
27 - Aston Villa recorded 27 shots against Burnley, the most by any side without scoring in a single Premier League match since Crystal Palace fired in 31 v Cardiff in December 2018. Wasteful. pic.twitter.com/zjVrnMa6gc
— OptaJoe (@OptaJoe) December 17, 2020