Bein útsending: Tídægra í flutningi Maríönnu Clöru Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. mars 2020 11:23 Maríanna Clara Lúthersdóttir er dramatúrg í Borgarleikhúsinu. Hún les sögu dagsins. Borgarleikhúsið
Næst á dagskrá hjá Borgó í beinni er lestur á skemmtisögu úr Tídægru eftir hinn ítalska Giovanni Boccaccio. Lesin verður ein saga úr skemmtisögusafninu í hádeginu hvern miðvikudag meðan á samkomubanninu stendur. Maríanna Clara Lúthersdóttir dramatúrg í Borgarleikhúsinu les í dag og hefst flutningur klukkan 12:30. Tídægra, eða Decameron, er skrifuð í kjölfar þess að plágan mikla gekk yfir Flórens árið 1348. Yfir helmingur borgarbúa hafði fallið í valinn áður en yfir lauk og á rammasaga bókarinnar sér stað í farsóttinni miðri. Hópur ungs fólks ákveður að yfirgefa Flórens og flýja í sumarhöll fyrir utan bæinn með það fyrir augum að vera í einangrun þar til sóttin réni. Til að stytta sér stundir segja þau hvert öðru sögur – tíu sögur á dag í þá tíu daga sem þau dvelja í sumarhöllinni. Þar sem Boccaccio sjálfur upplifði pláguna þykir Tídægra í senn vera ómetanleg heimild um lífið á tímum Svarta dauða sem og safn leikandi léttra og skemmtilegra smásagna - sem þó eru ekki án brodds því höfundurinn deilir á hræsni, kirkjuna og jafnvel kúgun kvenna. Uppfært. Útsendingunni er lokið en horfa má á upplesturinn í spilaranum hér að neðan.
Leikhús Borgarleikhúsið í beinni Samkomubann á Íslandi Tengdar fréttir Bein útsending: Allt um söngleikina um Bubba og Elly Fyrirlestri Ólafs Egils Egilssonar leikstjóra er streymt beint hér á Vísi klukkan 12 í dag. Þetta er annað beina streymið frá Borgarleikhúsinu á meðan á samkomubanninu stendur en leikhúsið ætlar að bjóða Íslendingum upp á þétta dagskrá næstu vikur. 17. mars 2020 12:30 Bein útsending: Skattsvik Development Group Sýningunni Skattsvik Development Group er streymt beint á Vísi. Þetta er fyrsta beina streymið frá Borgarleikhúsinu en leikhúsið ætlar að hafa þétta dagskrá á meðan á samkomubanninu stendur. 16. mars 2020 19:02 Mest lesið Löggan sem gerðist leikari á miðjum aldri Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Tónlist Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Fleiri fréttir Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira
Bein útsending: Allt um söngleikina um Bubba og Elly Fyrirlestri Ólafs Egils Egilssonar leikstjóra er streymt beint hér á Vísi klukkan 12 í dag. Þetta er annað beina streymið frá Borgarleikhúsinu á meðan á samkomubanninu stendur en leikhúsið ætlar að bjóða Íslendingum upp á þétta dagskrá næstu vikur. 17. mars 2020 12:30
Bein útsending: Skattsvik Development Group Sýningunni Skattsvik Development Group er streymt beint á Vísi. Þetta er fyrsta beina streymið frá Borgarleikhúsinu en leikhúsið ætlar að hafa þétta dagskrá á meðan á samkomubanninu stendur. 16. mars 2020 19:02