Að hópstýra starfsfólki í fjarvinnu: Margt mun breytast varanlega Rakel Sveinsdóttir skrifar 21. apríl 2020 11:00 Herdís Pála Pálsdóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðsstjóri Deloitte á Íslandi segist ekki sjá fyrir sér að vinnustaðir fari aftur í fyrra horf eftir samkomubann. Fjarvinna muni aukast og ýmsar áherslur breytast. „
Við förum að verða óhræddari við að nýta tæknina fyrir fjarvinnu, vinnuskipulag, fundi og fleira. Fundir fara að verða hnitmiðaðri, skilvirkni í vinnu mun aukast með bættri yfirsýn og svo framvegis,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðsstjóri Deloitte á Íslandi um það hvernig hún telur að vinnustaðir munu breyta verklagi sínu í kjölfar kórónuveirunnar. Í þessu felst ný áskorun fyrir stjórnendur, sem síðustu vikur hafa verið að hópstýra starfsfólki í fjarvinnu. Þar segir Herdís Pála mikilvægt að stjórnendur þori að gefa þessum breytingum fullan séns og treysti fólkinu sínu. „Ég trúi því að allir starfsmenn vilji standa sig vel“ segir Herdís Pála. Herdís Pála er með MBA frá Bandaríkjunum með áherslu á mannauðsstjórnun. Hún hefur starfað við mannauðsmál og stjórnun frá aldamótum. Síðast hjá RB í sex ár en þar áður hjá Íslandsbanka og Byr. En að hverju þurfa stjórnendur að huga sérstaklega að, þegar verið er að hópstýra starfsfólki í fjarvinnu? „Gott er að skerpa á því að allir viti vel til hvers er ætlast af því í starfi. Skerpa á sýn og markmiðum. Hjálpa starfsfólki að brjóta starfið sitt upp í verkefni og verkþætti sem gott er að halda utan um í til dæmis Planner í Teams, sem gerir þá öll samskipti og endurgjöf á fjarfundum markvissari. Hafa reglulega, að jafnaði til dæmis einu sinni til tvisvar í viku, spjallfundi í fjarfundabúnaði, með kveikt á myndavélinni. Tala líka stundum um eitthvað annað en vinnuna, til dæmis bara hvernig fólk hefur það. Stjórnendur þurfa líka að átta sig á því að það er ekkert að því, og meira að segja bara gott, að starfsfólk brjóti daginn sinn meira upp í lotur, í kringum verkefni. Fari svo á milli lotanna út í göngutúr, heilsa upp á fullorðna foreldra sína eða annað og komi enn ferskara og meira skapandi til baka. Það þarf nefnilega að fara að horfa meira á hvað er að koma út úr starfi hvers og eins, hvaða virði hver og einn er að skapa, sérstaklega þegar horft er til þekkingarstarfsmanna, ekki bara hvað hann situr í marga klukkutíma í sætinu eða fyrir framan tölvuskjáinn,“ segir Herdís Pála. Herdís Pála segist sannfærð um að margt muni breytast varanlega í kjölfar kórónufaraldurs og þeirri fjarvinnu sem verið hefur síðustu vikurnar. Fjarvinna muni aukast hjá vinnustöðum og áherslur breytast.Vísir/Aðsent Er hætta á að starfsfólki finnist stjórnendur ekki til staðar þegar allir, þ.m.t. stjórnendurnir sjálfir, eru í fjarvinnu? „Það kann að vera en þá væri það væntanlega mest vegna þess að þeir væru enn að horfa á starfið sitt með gömlu gleraugunum, með þá sýn að öll vinna þurfi að vinnast á vinnustaðnum sjálfum og að þeir þurfi að vera á staðnum til að fylgjast með fólki,“ segir Herdís Pála og bætir við „Ég hef nefnilega verið að heyra að það sé upplifun margra stjórnenda og starfsfólks að stjórnendur séu jafnvel enn aðgengilegri núna fyrir fólkið sitt en þegar þeir voru alla daga út um allan bæ á fundum eða álíka.“ Að sögn Herdísar eru stjórnendur æ meir að átta sig á því að stjórnun nú til dags snýst meira um að vera til staðar fyrir sitt fólk, hvetja það, styðja og leiðbeina. „En ekki að loka sig inn á skrifstofu eða fundarherbergi alla daga,“ segir Herdís. Þá segir hún að stjórnendur sem horfa á starfsfólkið sitt sem einstaklinga frekar en eingöngu starfsfólk og hugsi vel um heilsu og velsæld síns fólks, uppskeri í því að starfsfólkið þeirra verður minna veikt, starfsmannavelta minnkar og fleiri vilja vinna fyrir þannig stjórnendur. En sérðu fyrir þér að í kjölfar fjarvinnunnar síðustu vikurnar, muni eitthvað breytast varanlega á vinnumarkaði? Heldur betur, ég trúi því ekki upp á okkur að við munum fara aftur í gamla farið,“ segir Herdís Pála. „Nú held ég að allir fari að skipuleggja vinnuvikurnar sínar með öðrum hætti þannig að það sé skýrt hvaða daga þarf að mæta á vinnustaðinn og hvaða daga er bara betra að vera heima að vinna í næði,“ segir Herdís Pála. „Sem er þá líka gott út frá umhverfissjónarmiðum, engin ástæða til að keyra á einhvern stað til að vinna eitthvað sem þú getur jafn vel eða betur unnið heima hjá þér,“ segir hún að lokum.
Stjórnun Mannauðsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Fjarvinna Vinnumarkaður Mest lesið Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Trendin 2026: Gervigreindin mikilvæg og laun mögulega auglýst Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Góður hárblástur og smink á morgnana á undanhaldi Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Framkvæmdastjóri Bónus: „Ég er svona „aulahúmor“-stríðinn“ Spilavinir í vinnunni: Efla samskipti, samvinnu og hrista saman hópinn Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ Sjá meira